
Landsdómsmálið er angi af tilraun íhaldsmanna til að komast aftur til valda segir Jóhanna Sigurðardóttir. Pressphotos.biz
„Velkjumst aldrei í vafa um það að nú er unnið leynt og ljóst víða í þjóðfélaginu að koma íhaldinu aftur til valda áður en við jafnaðarmenn náum þessum stóru baráttumálum í höfn. Baráttan um Ísland – hið nýja Ísland og framtíðina er nú í algleymingi. Valda og varnabandalög sérhagsmuna munu ekki meðan ég fæ einhverju ráðið stoppa okkur. Þar ætlum við að sigra.“
Þessi orð lét Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, falla á flokksstjórnarfundi í morgun en þar vísaði hún til landsdómsmálsins yfir Geir H. Haarde. Það mál væri eingöngu tilraun íhaldsins til að reka fleyg milli jafnaðarmanna og ljóst að unnið væri leynt og ljóst að því víða að koma íhaldsmönnum aftur til valda til að koma í veg fyrir að mikilvæg baráttumál.
Jóhanna sendi flokksmönnum sínum þau skilaboð vegna málsins að eina leiðin væri að virða og umbera skoðanir flokksmanna allra en viðurkenndi að málið væri erfitt og því fylgi djúpstæðar tilfinningar.
„Látum ekki íhaldið reka fleyg í okkar raðir. Tilgangurinn er auðvitað sá að kalla fram kosningar sem fyrst og koma í veg fyrir að grundvallaratriðin í stefnu okkar jafnaðarmanna um breytt fiskveiðistjórnarkerfi, breytta stjórnarskrá og auðlindastefnu í þágu þjóðarinnar verði að veruleika og þeir geti þar ráðið ferðinni í þágu sinna sérhagsmuna.“
Mbl.is greindi frá.
