Framganga útvarpsstjóra einsdæmi. Vinnur RÚV að því að framlengja líf ríkisstjórnarinnar?
Björn Bjarnason, fyrrverandi menntamálaráðherra og æðsti yfirmaður Ríkisútvarpsins, gagnrýnir framgöngu Páls Magnússonar harkalega og segir hana einsdæmi. Með því gangi útvarpsstjóri ríkisins fram fyrir skjöldu í sókn vinstrimanna og gerist virkur þátttakandi í hinni flokkspólitísku baráttu í landinu.
Eyjan birti í morgun grein eftir Pál Magnússon útvarpsstjóra sem vakið hefur mikla athygli. Þar svarar hann fullum hálsi gagnrýni sem Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins hefur beint að Ríkisútvarpinu í leiðurum og Reykjavíkurbréfum Morgunblaðsins og sparaði síst stóru orðin.
Meðal annars sagði Páll:
Í Reykjavíkurbréfinu er því líka haldið fram, eins og oft áður á þeim vettvangi, að fréttastofa RÚV sé þátttakandi í einu allsherjar samsæri Samfylkingarinnar – sérstaklega í því að koma þjóðinni inn í Evrópusambandið. Á RÚV vinna um 50 fréttamenn. Allskonar fólk með mismunandi menntun og bakgrunn og áhugamál. Konur og karlar, sumir úr sveit, aðrir úr borg og enn aðrir úr sjávarþorpum. Ungir og gamlir með allskonar skoðanir á öllum málum – líka Evrópusambandinu. Það sem þessu fólki er þó sameiginlegt er að hafa valið sér fréttamennsku sem starfsvettvang – sem fag. Margir hafa lagt á sig langt nám á þessu sviði og aðrir búa að mikilli og fjölþættri starfsreynslu. Að tala um þetta fólk með þeim hætti sem ritstjórinn gerir felur í sér svo mikla mannfyrirlitningu, forheimskun og heift að undrun sætir. Að lesa þessi skrif færir manni þó heim skýringuna á því að Morgunblaðið hefur í tíð þessa ritstjóra tapað meira en þriðjungnum af öllu því sem skiptir blaðið mestu máli: lestrinum, sölunni, og – umfram allt annað – traustinu.
Björn Bjarnason, sem var lengi menntamálaráðherra og þar með æðsti yfirmaður Ríkisútvarpsins, er mjög ósáttur við framgöngu útvarpsstjórans. Í nýjum pistli á Evrópuvaktinni segir hann meðal annars:
Páll Magnússon, útvarpsstjóri ríkisins, er meðal þeirra sem ganga fram fyrir skjöldu í sókn vinstrisinna og beinir hann spjótum sínum að Morgunblaðinu og þó sérstaklega Davíð Oddssyni, ritstjóra blaðsins. Að útvarpsstjóri gerist á þennan hátt virkur þátttakandi í hinni flokkspólitísku baráttu í landinu er einsdæmi. Ýtir málflutningur Páls undir þá skoðun að RÚV vinni markvisst að því undir hans stjórn að framlengja líf ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

