Styrmir Gunnarsson spyr: Í hvaða veröld býr forsætisráðherra?
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, spyr í hvaða veröld Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra búi eiginlega. Tilefnið er ræða Jóhönnu sem formanns Samfylkingarinnar á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær, þar sem hún sagði að baráttan um hið nýja Ísland væri nú í algleymingi og aðalandstæðingurinn í þeim efnum væri Íhaldið.
Styrmir fjallar um ræðuna í morgun á vef sínum Evrópuvaktinni og skrifar:
Er það? Hvar er sú barátta nú „í algleymingi“? Hefur einhver orðið var við hana?! Það er von, að fólk spyrji í hvaða veröld forsætisráðherra búi.
Svo er að sjá af pistli Styrmis, að hann telji að forsætisráðherra hafi villst í tíma og sé stödd í stéttabaráttunni sem stóð hæst fyrir og um miðbik 20. aldarinnar:
Baráttan, sem stendur yfir í huga Jóhönnu Sigurðardóttur og er „í algleymingi“ þar er baráttan við „íhaldið“. Sú barátta stóð yfir af hálfu jafnaðarmanna fyrir og um miðbik 20. aldar. Það er sú barátta sem Jóhanna stendur í. En það eru ekki margir aðrir þátttakendur í þeirri baráttu, þegar hér er komið sögu.
Alla vega ekki „íhaldið“!
Stendur það í einhverri baráttu?
Eina baráttan, sem Samfylkingin og ríkisstjórn hennar stendur í er barátta við sjálfa sig og eigin samherja.
Og Styrmir telur upp þá baráttu sem Jóhanna hefur átt í við eigin samherja:
Jóhanna er búinn að standa í flórnum miðjum. Hún er búin að hreina út Kristján Möller, Hún er búin að hreinsa út Ingibjörgu Sólrúnu. Hún er búin að hreinsa út Björgvin G. Sigurðsson. Hún er búin að hreinsa út Árna Pál Árnason. Hún er búin að hreina út Kristrúnu Heimisdóttur. Hún er að reyna að hreinsa út Ástu Ragnheiði. Það gengur eitthvað illa.
Óneitanlega er þetta mikil og hörð barátta, sem Jóhanna er búin að standa í. Var nauðsynlegt að hreinsa þetta fólk allt út til að búa til „nýtt Ísland“.
Svo er náttúrlega baráttan við Össur og þetta fólk, sem vill skipta um formann í Samfylkingu fyrir næstu kosningar.
Og ritstjórinn fyrrverandi veltir upp þeirri spurningu, hvers vegna hópur fólks innan Samfylkingar telji svona brýnt að skipta um formann fyrir næstu þingkosningar.
Finnst þeim ekki sigurvænlegt að ganga til kosninga undir forystu Jóhönnu?
Hvernig má það vera að þeir telji það ekki sigurstranglegt?
Jóhanna beindi spjótum sínum að „varnarbandalagi sérhagsmuna“ í ræðu sinni á flokksstjórnarfundinum i gær.
Öflugasta „varnarbandalag sérhagsmuna“, sem nú er á ferðinni er það varnarbandalag, sem búið hefur verið til af því fólki, sem á hagsmuna að gæta að Jóhanna haldi áfram sem formaður Samfylkingar.
Gerir hún sér grein fyrir því?
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

