Bjarni fengið nóg. „Tilraunir til að bendla mig við lögbrot og brask fyrir löngu keyrt um þverbak“

Bjarni segir nóg komið af dylgjum í sinn garð og telur líklegt að þær tengist tillögu hans að draga ákæruna á Geir Haarde til baka
Tilraunir til að bendla Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, við lögbrot og brask hafa fyrir löngu keyrt um þverbak að hans mati. Hann segir erfitt annað en tengja slíkar tilraunir að undanförnu við tillögu sína um að Alþingi falli frá ákæru á hendur Geir Haarde.
Í aðsendri grein í Morgunblaðinu segir Bjarni nóg komið af helsjúkri umræðu og vísar þar til skrifa Hallgríms Helgasonar og Björns Ólafs Hallgrímssonar um lánveitingu til Vafnings annars vegar og sölu Bjarna á hlutabréfum sínum í Glitni í febrúar 2008.
Í opnu bréfi hér í blaðinu á laugardaginn spyr Björn Ólafur Hallgrímsson mig þess hvort ég hafi fengið upplýsingar um fund seðlabankastjóra með forsætisráðherra, utanríkisráðherra og fjármálaráðherra frá 7. febrúar 2008, beint eða óbeint. Látið er að því liggja að ég hafi á grundvelli þessa tekið ákvörðun um sölu hlutabréfa minna í Glitni í þeim sama mánuði. Lögmaðurinn dylgjar um lögbrot með þessu.
Af sama meiði er grein brjóstmylkings útrásarinnar, Hallgríms Helgasonar, sem birtist á öðrum stað í vikunni sem leið. Sá telur að ég hljóti að hafa vitað að lögbrot væru framin þegar Glitnir veitti félaginu Vafningi lán eða að minnsta kosti mátt vita að gerningurinn væri grafskrift bankans. Aftur er dylgjað um lögbrot vegna sölu hlutabréfa og málið sagt líkt öðru sem nú er til meðferðar í dómskerfinu.
Skrifin eru af þeim meiði sem hvað mest hefur verið áberandi undanfarin misseri og biskup Íslands gerði að sérstöku umtalsefni í nýárspredikun sinni: »Og við sitjum í örfoka auðn hálfsannleika, upphrópana og yfirboða.«
Erfitt er að verjast þeirri hugsun að tilefni greinaskrifanna hafi eitthvað með þingmál mitt um afturköllun ákærunnar yfir Geir H. Haarde að gera. Skrifað er um gamlar fréttir, þær endursagðar og kryddaðar. Allt til að varpa rýrð á undirritaðan á viðkvæmum pólitískum tímum. En þetta eru vindhögg. Ólíkt hnefahöggunum sem Hallgrímur lét dynja á bíl Geirs H. Haarde um leið og hann öskraði og æpti eins og frægt varð.
Það er auðsótt fyrir Björn Ólaf að fá staðfest hjá mér að í viðkomandi mánuði hafði ég enga vitneskju um fund seðlabankastjóra með viðkomandi ráðherrum, hvorki beint né óbeint.
Nauðsynlegt er hins vegar að benda á að fullyrðing Björns Ólafs, um að þau tíðindi hafi verið flutt á nefndum fundi, að fall bankanna yrði ekki umflúið, er röng. Nægir um þetta að vísa til rannsóknarskýrslu Alþingis þar sem fjallað er um minnisblað Seðlabankans vegna ferðarinnar til Bretlands, sem rætt var um á fundinum: ,,Undir lok minnisblaðsins er sú ályktun dregin að hefjast þurfi þegar handa við að vinda ofan af þeirri stöðu sem upp sé komin.
Skrif þeirra félaga ganga að öðru leyti út frá því að það hafi einungis verið á fárra vitorði að alvarleg staða væri uppi í alþjóðlega og um leið íslenska bankakerfinu. Ekkert gæti verið fjær sannleikanum.
Um aðkomu mína að lánveitingum Glitnis til hlutafélagsins Vafnings hef ég margrætt í viðtölum í blöðum, útvarpi sem og sjónvarpi. Tilraunir til að bendla mig við lögbrot og brask hafa hins vegar fyrir löngu keyrt um þverbak.
Lánveitingar til Vafnings fóru í opinbera rannsókn. Þar var staðfest að eina aðkoma mín að því máli var sú að koma fram fyrir hönd hluthafa í félaginu og tryggja bankanum veð fyrir lánveitingunum með undirritun, fyrir þeirra hönd, á veðsamning. Ég kom hvergi að stofnun Vafnings og sat ekki í stjórn félagsins. Kom hvergi að samningum við bankann, hvorki um lánsfjárhæð, tryggingar né nokkuð annað. Skrifaði auk þess ekki undir lánssamninginn.
Undir rannsókn málsins hef ég á engu stigi legið undir grun um lögbrot. Í blaðaskrifum hefur ítrekað verið reynt að færa á mínar herðar ákvarðanir sem teknar voru án nokkurra afskipta af minni hálfu. Ég ber enga ábyrgð á ákvörðunum stjórnenda eða eigenda Sjóvá. Hafi verið farið illa með eigur þess félags er skýrt hver ber ábyrgð á slíku, þótt mikið hafi verið skrifað og sagt til að reyna að fella þá ábyrgð á mig. „Bjarni í braski á Makaó“ er ein afar fjarstæðukenndra fyrirsagna sem diktaðar hafa verið upp um þetta mál og ærumeiðing er eini tilgangurinn.
Ég ber á sama hátt enga ábyrgð á mögulega röngum ákvörðunum stjórnenda Glitnis, sem þeir sæta nú ákæru vegna. Aldrei hafði ég ástæðu til að ætla annað en að bankinn færi að lögum og reglum við lánveitingar sínar. Allt tal um annað eru rakalausar dylgjur – ,,hálfsannleikur, upphrópanir og yfirboð.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
