eyjan.is

Mánudagur 30.01.2012 - 19:47 - Ummæli ()

Þegar svo nokkrir úr „mínu liði” fóru að kjósa með Bjarna, ákvað ég endanlega að skrifa þessa grein

Svo er það Landsdómsmálið. Maður sér það í nýju ljósi þegar maður fer að rýna í aðkomu hans að þessu máli. Og maður spyr sig, ætla vinstri menn að kóa með ótta sjálfstæðismanna um að fyrirhrunstíminn verði upplýstur?

Þannig spyr rithöfundurinn Hallgrímur Helgason í viðtali við vefritið Smuguna í dag, en tilefnið er umtöluð grein sem hann skrifaði í helgarblað DV þar sem fjallað er um viðskiptagjörninga Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins meðan hann var áberandi í viðskiptalífinu fyrir hrun, meðal annars sem stjórnarmaður N1.

Hallgrímur sem oft hefur fundið til í pólitískum stormum sinnar tíðar, hefur verið gagnrýndur fyrir að ráðast að Bjarna Benediktssyni í pólitískum tilgangi. Með því sé hann að hegna Bjarna fyrir að hafa lagt fram tillögu á þingi um að vísa frá ákærum á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra.

Í viðtali við Smuguna segist Hallgrímur ekki fullyrða að Bjarni hafi brotið lög:

En mér finnst mörgum spurningum ósvarað. Hvenær skrifaði hann undir þessa pappíra? Skrifaði hann undir þá eftir þessa helgi og voru þeir svo dagsettir aftur í tímann? Vissi hann af því? Mér finnst hann ekki hafa sagt rétt frá og þurfi að skýra mál sitt betur. Ég held að þetta sé kannski frekar siðferðislegt og pólitískt mál. Kannski var hann ekki að fremja lögbrot sjálfur, en hann kemur að lögbroti. Lögbroti sem varðar tugi milljarða, og lætur svo bara eins og allt sé í lagi.

Ekki verður annað lesið af viðtalinu við Hallgrím, en að tenging greinar hans við umrætt Landsdómsmál sé ekki úr lausu lofti gripin:

Síðan var þessi atkvæðagreiðsla í þinginu.  Bjarna tókst með þessu að koma róti á stjórnarflokkana, sem var sorglegt að horfa upp á. Þegar svo nokkrir úr „mínu liði” fóru að kjósa með Bjarna, þá ákvað ég endanlega að skrifa þessa grein.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is