eyjan.is

Mánudagur 30.01.2012 - 10:25 - Ummæli ()

Vill gagngerar breytingar á Þingvöllum. Burt með alla bústaði og Þingvallanefnd

Breyta þarf ýmsu í þjóðgarðinum á Þingvöllum að mati náttúrufræðings

Náttúrufræðingurinn Sigrún Helgadóttir telur að gera þurfi ýmsar veigamiklar breytingar á þjóðgarðinum á Þingvöllum og þar á meðal þurfi að leggja niður hina pólitísku Þingvallanefnd. Þá vill Sigrún fjarlægja alla sumarbústaði í landi Þingvalla.

Um þetta fjallaði fyrirlestur Sigrúnar á ráðstefnu á vegum Landverndar sem Fréttablaðið greinir frá. en Sigrún gerir margar athugasemdir við hvernig garðurinn er starfræktur í dag.

Nauðsynlegt er að hennar mati að fjarlægja öll erlend tré úr garðinum nema þeim sem var plantað fyrir 1911 og hafa sögulegt gildi. Færa þurfi þjóðgarðsgirðingar að þjóðgarðsmörkum svo hann sé allur beitarfriðaður og þá vill Sigrún láta fjarlægja alla sumarbústaði úr þjóðgarðinum.

Gamli Þingvallabærinn megi þó standa og þar eigi að vera lítið kaffihús að hennar mati en húsið er fyrst og fremst orlofsbústaður forsætisráðherra landsins í dag.

Ennfremur telur Sigrún æskilegt að þjóðgarðurinn sé „tekinn undan pólitískri stjórn löggjafarvalds og forsætisráðuneytis og settur undir faglega stjórn stofnunar umhverfisráðuneytis,“ eins og hún orðar það.

Sigrún benti á að af þeim sjö alþingismönnum sem nú eru aðalmenn í Þingvallanefnd eigi sæti aðeins tveir sem ekki séu annað hvort aðalmenn eða varamenn í fjárlaganefnd Alþingis. Framlög úr ríkissjóði til þjóðgarðsins á Þingvöllum séu mikið hærri en framlög til vegna Vatnajökulsþjóðgarðs og þjóðgarðsins við Snæfellsjökul að hluta af þeim sökum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is