Falskt öryggi í miðborg Reykjavíkur. Flestar öryggismyndavélar bilaðar
Flestar öryggismyndavélar í miðborg Reykjavíkur eru og hafa verið bilaðar og nýtast því ekki sem skyldi við eftirlit og rannsóknir lögreglu. Ástæðan er peningaleysi.
Alls eru átta öryggismyndavélar víðs vegar í miðborginni en enginn vafi leikur á að þær hafa sannað gildi sitt við rannsóknir lögreglu vegna afbrota. Undanfarið hafa þó aðeins tvær til þrjár þeirra virkað sem skyldi.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir Morgunblaðinu að augljóslega skerði það öryggi fólks í miðbænum að vélarnar hafi bilað ein af annarri en þær voru settar upp árið 1997. Þegar hefur komið fram minnst eitt dæmi um alvarlega líkamsárás sem lögregla telur ólíklegt að upplýsist þar sem engar myndir eru til en þá var ráðist á hjón að tilefnislausu
Aðstoðarmaður borgarstjóra segir borgaryfivöld hafa samþykkt að veita fjármagn til kaupa á nýjum myndavélum í vetur en vildi ekki tjá sig frekar um málið þegar eftir var leitað.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

