Stjórnarflokkarnir deila um rammaáætlun. Stöku þingmenn vilja fleiri virkjanir

Engin sátt hefur náðst milli stjórnarflokkanna um Rammaáætlun og talið óvíst að slík sátt náist áður en málið er á dagskrá þingsins
Stöku þingmenn Samfylkingarinnar eru sagðir vilja opna á frekari nýtingu náttúrusvæða en fram kemur í drögum að Rammaáætlun sem Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, kynntu í vetur. Áætlunin er ekki sögð njóta nægilegs stuðnings meðal stjórnarþingmanna.
Mál þetta er á dagskrá þingsins í byrjun febrúar að því er fram kemur í Fréttablaðinu en langur vegur er frá að þingmenn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar hafi náð samkomulagi um meginatriði tillögunnar og það sagt verða þrautin þyngri.
Hörðustu deilurnar varða virkjanir í Þjórsá og á Reykjanesi en nokkrir þingmenn Samfylkingar eru einnig sagðir á þeirri skoðun að fjölga beri virkjunum umfram það sem Rammaáætlun gerir ráð fyrir.
Fullyrt er að rætt hafi verið um að heimila aðeins tvær af þeim þremur virkjunum sem fyrirhugaðar eru í neðri hluta Þjórsár. Þannig yrði fallið frá Urriðafossvirkjun sem hvað mest er deilt um þar sem ýmislegt bendir til að bygging hennar muni valda hruni í laxa- og sjóbirtingsstofnum í ánni.
Varamaður hefur þegar tekið sæti Katrínar Júlíusdóttur á Alþingi enda ráðherrann á leið í fæðingarorlof og mun því varla mæla fyrir málinu þegar þar að kemur.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
