Er allur vindur úr átakinu? Eru Íslendingar bara ánægðir með að Ólafur Ragnar hætti?
Svo virðist sem mjög hafi dregið úr kraftinum í undirskriftasöfnun þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson að gefa kost á sér í fimmta sinn til embættis forseta Íslands.
Nú í kvöld höfðu ríflega 26 þúsund manns ritað nafn sitt á áskorun til forseta Íslands og höfðu þá aðeins tæplega þrjú hundruð undirskriftir bæst við síðasta sólarhringinn. Fyrstu dagana gekk söfnun undirskrifta afar vel og var því spáð að takmark aðstandenda söfnunarinnar um 40 þúsund undirskriftir myndi nást á aðeins örfáum dögum. Nú virðist útlitið í þeim efnum heldur dekkra.
Gunnar Smári Egilsson fjölmiðlamaður og formaður SÁÁ hefur ítrekað gert undirskriftasöfnunina að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og mælt ganginn í söfnuninni. Í fyrstu var hann undrandi á hinum mikla krafti í henni, en síðustu daga hefur hann flutt af því fregnir að vindurinn virðist úr seglunum hjá stuðningsmönnum forsetans.
Í dag skrifar Gunnar Smári:
Tólf dögum eftir að söfnun áskoranna á Ólaf Ragnar Grímson hófst; er svo til allur vindur úr átakinu. Síðasta sólarhringinn hafa aðeins 253 skorað á Ólaf. Með slíku framhaldi mun það taka fram til 25. mars að ná í 40 þúsund undirskriftir. Til að bjarga söfnuninni fyrir horn þurfa aðstandendur hennar annað hvort að svindla gróflega eða finna einhvern sem vill kosta úthringingar eða aðrar ágengar aðgerðir til að fá fólk til að skora á Ólaf. Áskoranir munu ekki safnast af sjálfum sér. Netsöfnunin er í raun dauð — og ferð forsetahjónanna á Suðurskautslandið hefur ekki náð að blása lífi í hana.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
