eyjan.is

Viðskipti Miðvikudagur 01.02.2012 - 14:30 - Ummæli ()

Héraðsdómi berast kvartanir vegna Dróma. Umboðsmaður skuldara telur að FME hafi gert mistök

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur á undanförnum mánuðum fengið nokkrar ábendingar og kvartanir frá óánægðum viðskiptavinum gamla SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans vegna samskipta við félagið Dróma sem Fjármálaeftirlitið flutti öll lán umræddra lánastofnana til við hrun þeirra á sínum tíma.

Eyjan hefur heimildir fyrir því að kvartað sé yfir því að engin svör fáist frá fulltrúum Dróma við einföldustu fyrirspurnum, mál séu lengi til afgreiðslu þar án þess að svör berist og Drómi taki lítinn sem engan þátt í viðleitni banka og fjármálastofnana til að semja við skuldsetta einstaklinga, leiðrétta lán og endurgreiða vexti, svo dæmi séu tekin.

Ásta S. Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, sagði í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun, að það hafi verið mistök af hálfu Fjármálaeftirlitsins (FME) að setja skuldir einstaklinga við Frjálsa fjárfestingabankann og SPRON í félagið Dróma. Staða þeirra sem skuldi Dróma sé önnur og verri af þeim sökum en hún er hjá bönkunum.

Ásta ræddi í þættinum um það óréttlæti sem felst í því að fólk fái mjög mismunandi afgreiðslu og úrlausn sinna mála eftir því hvaða banka það átti í viðskiptum við fyrir hrun. Íbúðalánasjóður sé bundinn af lögum og eigi erfitt um vik að fella niður skuldir. Bankarnir væru hins vegar í samkeppni og kepptust við að halda í viðskiptavini sína, því væri hvati hjá þeim til að koma til móts við skuldara. Sá hvati væri ekki til staðar hjá Dróma, en forsvarsmenn slitastjórnar hans hafa sagt að þeim sé óheimilt að endurgreiða vexti þar sem hlutverk þeirra sé fyrst og fremst að hámarka endurheimtur kröfuhafa.

Héraðsdómur Reykjavíkur skipaði slitastjórn Dróma á sínum tíma og hefur haft kvartanir í hennar garð til skoðunar að undanförnu, samkvæmt heimildum Eyjunnar. Fram kom í morgunþætti Rásar 2 að umboðsmaður skuldara muni funda með slitastjórn Dróma í dag og muni síðan senda erindi til Fjármálaeftirlitsins þar sem skuldarar hafi kvartað mikið undan samskiptum sínum við Dróma.

Í þættinum var einnig rætt við Höskuld Ólafsson, bankastjóra Arion banka, sem sagði að uppsetningin á lánasafni Dróma hafi verið til mikillar óþurftar, fyrir bankann og viðskiptavini. Arion banki innheimtir fjölda lána fyrir Dróma, en hefur að öðru leyti lítið eða ekkert forræði yfir þeim.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is