Þjóðin stendur á öndinni eftir ótrúlegt viðtal í Kastljósinu. „I love you man. I love you man.“
Óhætt er að fullyrða að þjóðin standi á öndinni eftir eitthvert eftirminnilegasta sjónvarpsviðtal síðari ára, sem birt var í Kastljósinu í kvöld við Eirík Inga Jóhannsson, sem komst lífs af er togarinn Hallgrímur fórst undan ströndum Noregs í síðustu viku og þrír félagar hans úr áhöfn skipsins fórust.
Samskiptavefir á borð við Facebook og Twitter hafa logað í kvöld þegar þjóðin ber saman bækur sínar um upplifun sína af viðtali Sigmars Guðmundssonar ritstjóra Kastljóssins, sem leyfði viðmælanda sínum lengstum að hafa orðið í kvöld er hann lýsti reynslu sem enginn vill nokkru sinni upplifa í sínu lífi.
Eiríkur Ingi kvaðst í viðtalinu hafa farið gegnum ótal hugsanir er skipið sökk og hann svamlaði um í sjónum:
Þú verður að vera brattur, hugsaðu til barnanna þinna. Þú verður að komast heim til barnanna þinna og konu.
Og hann lýsti æðruleysinu sem hann upplifði:
Ég gerði samkomulag við sjálfan mig; ég ætla að tolla í tíu tíma. Ég ætla ekki að gefast upp
Þegar Eiríkur Ingi heyrði fyrst í björgunarþyrlunni og sá hana síðast, synti hann í áttina til hennar:
Svo sá ég sigmanninn koma niður. Ég synti beint í fangið á honum og sagði: „I love you man. I love you man.“
Þórarinn Jón Magnússon, einn reyndasti fjölmiðlamaður landsins, segir um viðtalið:
Ég er ekki frá því að vert væri að veita skipsverjanum Eiríki (sem bjargaðist af Hallgrími) sérstök fjölmiðlaverðlaun Eddunnar fyrir að halda athygli án nokkurs innskots mynda eða spurninga í ríflegum Kastljósþætti. Verður með eftirminnilegustu atriðum Kastljóss fyrr og síðar.
Sigríður Arnardóttir (Sirrý) fjölmiðlakona segir:
Þetta merkilega viðtal við Eirík Inga Jóhannsson í Kastjósi kvöldsins er svo lærdómsríkt fyrir okkur hin sem aldrei höfum kynnst hættum hafsins. Hann greindi líka svo vel frá samkennd sjómanna, mætti hugarfarsins og ólíkum tilfinningum sem toguðust á í honum á björgunarstund þ.e. bæði gleði og sorg. Ógleymanleg frásögn.
Ragnheiður Elín Clausen skrifar:
Einlægasta og áhrifamesta viðtal sem ég man eftir í íslensku sjónvarpi … maður situr lamaður.
Sjá hér viðtal Kastljóssins í kvöld sem allir eru að tala um.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
