Aldrei friður í þjóðfélaginu fyrr en heimilin fá leiðréttingar segir Marinó

Hvernig réttlæti er að þjófarnir sem öllu stálu í aðdraganda hrunsins fái í kjölfar þess að velja hverju skilað er og hverju ekki spyr Marinó G. Njálsson
Það verður aldrei friður í íslensku þjóðfélagi meðan stjórnvöld líta svo á að fjármálafyrirtækin séu löglegir eigendur þess fjár sem haft var af viðskiptavinum með ýmsum vafasömum aðferðum segir Marinó G. Njálsson. Hann telur að leiðréttingar verði að miðast við ársbyrjun 2008 en ekki október 2008 þar sem þriðjungur hrunsins hafi átt sér stað fyrir þann tíma.
Marinó skrifar á blogg sitt viðbrögð við þeim orðum Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, að stjórnvöld hafi ýmislegt gert til aðstoðar skuldsettum heimilum landsins. Segir hann forsætisráðherra berja hausnum við steininn því hún gleymi að það sem gert hafi verið hafi meira eða minna verið á forsendum fjármálafyrirtækjanna.
Stöðunni í dag líkur hann við að þjófagengi hafi brotist inn á heimili landsmanna og stolið öllu steini léttara og nú þegar gengin hafi verið nöppuð fái þau að velja hverju er skilað og hverju ekki.
Ég veit ekki hve margir átta sig á, að verðbólga frá janúar byrjun 2008 til dagsins í dag er 37,4%, en frá hruni til dagsins í dag 22,7%. Munar þarna 14,7%, sem er verðbólga frá byrjun janúar til hruns með uppsöfnunaráhrifum af síðari verðbólgu. Ríflega 1/3 af tjóninu varð fyrir hrun.
Meðan ekki er búið að lagfæra afleiðingarnar á efnahagshruninu, sem átti sér stað frá áramótum 2008 fram að því þegar neyðarlögin voru sett, þá er ekki búið að koma hlutunum í samt lag. Að fjármálafyrirtæki (þó þau séu ný) fái að stinga í vasann bara einhverri af þeirri hækkun skulda sem varð á þessu tímabili er staðfesting á því, að fjármálafyrirtæki eru hafin yfir lög. Þau mega setja heilt hagkerfi á hausinn og stinga afrakstrinum í eigin vasa! Þau mega stunda vafasöm viðskipti, sem líklegast stangast á við lög, en samt stinga hagnaðinum í vasann. Þau mega fella krónuna og skapa verðbólgu til að hækka kröfur sínar á saklausa lántaka og þannig stefna öllu í voða, en samt stinga hagnaðinum í vasann. Þau mega hunsa alla varúð, sýna gróft vanhæfi, svíkja, svindla, beita blekkingum og bjóða ólöglega þjónustu, en samt stinga hagnaðinum í vasann.
Meðan stjórnvöld líta svo á, að fjármálafyrirtækin séu löglegir eigendur þess fjár sem haft var af viðskiptavinum með þeim aðferðum sem lýst er að ofan, þá verður ekki friður í þjóðfélaginu.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
