Gylfi Zoëga: Upptaka evru eða fljótandi gengi og Tobinskattur einu leiðirnar að stöðugleika

Evrusamstarf eða Tobin-skattur eru einu raunhæfu leiðirnar að stöðugleika hérlendis að mati Gylfa Zoëga
„Valið stendur því á milli þess að taka þátt í evrusamstarfi eða hafa fljótandi gengi með Tobin-skatti og öðrum aðgerðum sem ætlað er að draga úr sveiflum á gengi krónunnar.“
Gylfi Zoëga, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, fullyrðir í grein í tímaritinu Vísbending sem Fréttablaðið vísar til að stöðugt gengi sé algjör forsenda fyrir stöðugu verðlagi hér á landi. Náin tengsl gengis og verðlags séu einkennandi fyrir smá hagkerfi á borð við það íslenska og það útskýri mikla og sveiflukennda verðbólgu.
Það hafi einmitt verið náin tengsl krónunnar og verðbólgu sem mjög hafi rýrt trúverðugleika Seðlabanka Íslands að mati Gylfa enda hafi Seðlabankinn í raun aðeins einu sinni náð verðbólgumarkmiðum sínum og það árið 2003.
Hann telur ljóst að til að ná fram stöðugra verðlagi og um leið gera afnám verðtryggingar mögulegt séu aðeins tveir raunhæfir kostir í boði. Evrusamstarf eða upptaka Tobin-skatts en þá eru skattlögð sérstaklega hver einstök viðskipti þar sem einum gjaldmiðli er skipt í annan. Þannig yrði sett viðbótargjald á gjaldeyrissnúninga til þess að draga úr sveiflum.
Tekjur af Tobin-skatti gætu orðið verulegar auk þess sem slíkur skattur samræmist reglum EES. Hann komi því vel til greina sem hluti af endurbættu peningakerfi þegar gjaldeyrishöft hérlendis verði afnumin.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
