Hverjir vissu um 500 milljónir aukalega? Fjármálaeftirlitið rannsakar útboð Arion á Högum

Bjuggu einhverjir yfir þeim upplýsingum við útboð á Högum að virði fyrirtækisins væri 500 milljónum krónum hærra en gefið var upp?
Fjármálaeftirlitið hefur um skeið rannsakað með hvaða hætti Arion banki stóð að útboði á hlutum í verslunarrisanum Högum í byrjun desember en sólarhring eftir útboðið kom í ljós að fjárhagsstaða Haga var hálfum milljarða króna betri en fram kom í útboðslýsingu.
Heimildir Morgunblaðsins staðfesta að rannsókn hafi staðið yfir en Fjármálaeftirlitið hefur hingað til ekki viljað staðfesta neitt um slíkt.
Snýst málið um að tilkynning barst um það daginn eftir velheppnað útboð í Högum þar sem mun færri fengu en vildu kaupa að fjárhagsstaða Haga væri 500 milljónum króna betri en fram kom í útboðsgögnum þeim er Arion banki lét áhugasömum í té. Þær 500 milljónir væri tilkomnar vegna endurútreiknings gengistryggðra lána.
Ekki er hægt að útiloka að einhverjir aðilar hafi haft innherjaupplýsingar um aukinn hagnað Haga við upprunalegt útboð en virði hlutabréfa í Högum hækkaði strax í kjölfar útboðsins um 25 prósent.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
