eyjan.is

Viðskipti Fimmtudagur 02.02.2012 - 15:09 - Ummæli ()

Rannsókn Sérstaks saksóknara á Sjóvá og Milestone vindur upp á sig. Starfsmenn KPMG yfirheyrðir

Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari

Fulltrúar á vegum embættis sérstaks saksóknara fóru inn í endurskoðendafyrirtækið KPMG í dag. Þar stóttu þeir gögn í tengslum við rannsókn embættisins á Sjóvá og Milestone.

Þetta staðfesti Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins. Kom þar fram að þrír hafi verið færðir til yfirheyrslu vegna málsins.

Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri KPMG, sagði í samtali við Bylgjuna að rannsókn málsins staðið í nokkurn tíma og fyrirtækið hafi afhent embættinu gögn eftir því sem þurfa þykir til að upplýsa um rannsókn málsins.

Aðspurður segir Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari að málið tengist ekki Vafningsmálinu svokallaða sem þegar er búið að gefa út ákærur í.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is