Sofnar frávísunartillaga Bjarna Ben í þingnefnd? Ekki meirihluti í nefndinni fyrir afgreiðslu
Svo kann að fara að þingsályktunartillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að vísa frá kæru á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdómi, fáist ekki afgreidd út úr þingnefnd og komist þannig ekki til síðari umræðu á Alþingi og atkvæðagreiðslu, ekki að sinni að minnsta kosti.
Róbert Marshall, varaformaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis, sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins, að ekki sé meirihluti fyrir tillögunni í nefndinni og því sé ekki ástæða til að taka hana til síðari umræðu á þingi. Það sé málefnaleg niðurstaða og sömu örlög og um hundrað þingmál fái á hverjum vetri.
Samkvæmt dagskrá Alþingis er næsti fundur áætlaður eftir tæplega hálfan mánuð, eða þann 14. febrúar næstkomandi. Í næstu vika er kjördæmavika á Alþingi.
Ef Alþingi afturkallar ekki kæruna á næstu dögum heldur málsmeðferð fyrir Landsdómi áfram. Aðalmeðferð í máli Geirs Haarde fyrir landsdómi hefst 5. mars næstkomandi.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
