eyjan.is

Fimmtudagur 02.02.2012 - 20:58 - Ummæli ()

Tobinskattur á viðskipti með gjaldeyri kemur til greina segir Steingrímur

Stjórnvöld munu þurfa einhvers konar öryggistæki þegar gjaldeyrishöftin verða afnumin segir efnahags- og viðskiptaráðherra

Steingrími J. Sigfússyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, líst vel á hugmyndir þess efnis að leggja sérstakan skatt á öll gjaldeyrisviðskipti þegar gjaldeyrishöft verða afnumin. Gylfi Zoëga, hagfræðiprófessor, segir það eina eina úrræðið fyrir utan evrusamstarf til að skapa stöðugleika í verðlagi og þar með grundvöll fyrir afnámi verðtryggingar hérlendis.

Eyjan greindi frá í morgun frá þeirri skoðun Gylfa Zoëga, prófessors við Háskóla Íslands, að hér á landi verði ekki hægt að ná stöðugleika í framtíðinni nema annaðhvort að fara í evrusamstarf ellegar hafa fljótandi gengi en um leið taka upp svokallaðan tobinskatt sem þýðir sérstaka skattlagningu á öll gjaldeyrisviðskipti.

Steingrímur tekur undir það í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að þörf verði á því þegar gjaldreyrishöftin verða afnumin að Seðlabankinn þurfi einhver stjórntæki til öryggis og eitthvað í líkingu við Tobinskatt gæti verið hluti af slíku.

„Mér finnst það mjög spennandi að vaxandi umræður séu orðnar núna bæði alþjóðlega og í einstökum löndum um einhvers konar Tobin-skatt eða ígildi hans til að bregðast við þessari stórskaðlegu og hættulegu spákaupmennsku og stöðutöku sem hefur farið mjög illa með mörg lönd. Í mínum huga er alveg ljóst að við munum þurfa einhvers konar þjóðhagsvarúðar öryggistæki sem myndi taka við af gjaldeyrishöftunum þegar þau hverfa. Og eitthvað af þessu tagi gæti verið hluti af því.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is