eyjan.is

Fimmtudagur 02.02.2012 - 15:45 - Ummæli ()

Umtöluð frásögn Eiríks Inga í Kastljósinu. Minnir á reynslusögu Guðlaugs Friðþórssonar árið 1984

Frásögn Eiríks Inga Jóhannssonar af baráttu hans og félaga hans fyrir lífi sínu minnir um margt á frásögn Guðlaugs Friðþórssonar eftir Helliseyjarslysið 1984.

Þetta segir sjónvarpsmaðurinn Ómar Ragnarsson, sem hreifst eins og flestir aðrir landsmenn af mögnuðu viðtali Sigmars Guðmundssonar í Kastljósi í gærkvöldi við Eirík Inga sem komst einn af í hörmulegu sjóslysi við strendur Noregs í síðustu viku. Þrír fórust er togarinn Hallgrímur sökk skyndilega.

Eins og Eyjan sagði frá í gærkvöldi, sat þjóðin sem lömuð fyrir framan sjónvarpsskjáinn í gærkvöldi og horfði á tímamótaviðtalið í Kastljósinu, það lengsta sem birst hefur í þeim sjónvarpsþætti frá upphafi.

Ómar skrifar á heimasíðu sína um líkindin við fræga hetjudáð Guðlaugs á sínum tíma:

Báðir komast lífs af vegna þess hvernig þeir bregðast rétt við aðstæðum, missa aldrei móðinn og hugsa ekki síður um sálfræðilegu hliðina en hina líkamlegu.

Báðir eru nokkra stund í samfloti með félaga sínum þar til hann er allt í einu horfinn.

Báðir efla þrek sitt með því að efna til ímyndaðrar samræðu, Guðlaugur við mávana, Eiríkur Ingi við þyrlubjörgunarmennina þar sem Eiríkur persónugerir flugstjórann í Jónasi, vini sínum, íslenskum þyrlustjóra.

Báðir leita á náðir tóna og ljóða og hugsa til náskyldra. Báðir leggjast frekar til baksunds en að synda á bringunni og reyna að ganga ekki um of á orkuforðann.

Eiríkur nærir hugann í fárviðri og stórsjó með því að hrífast af þeirri hrikalegu náttúrufegurð sem hann sér í himinháum „brimbrettabrimsköflum“  og hafróti.

Guðlaugur er hugsi yfir því að hann skuldi vini eða vinum peninga og biður bænir og leitar í því andlegs styrks.

Nokkur umræða hefur orðið hvort viðtalið við Eirík Inga hafi  verið of langt og hvort klippa hefði átt viðkvæmar lýsingar. Ómar Ragnarsson er ekki á því:

Sjónvarpið gerði að mínum dómi rétt í því að stytta viðtalið við Eirík ekkert og falla ekki í þá freistingu að fara að endursegja eitthvað.

Þegar ég tók viðtalið við Guðlaug á sínum tíma var mér skipað að stytta það og endursegja hluta þess.

Eftir á sá ég eftir því að hafa ekki hafnað því alfarið, – svona viðtöl eru ekki tekin á hverjum degi og það hlýtur að vera eitthvað annað í dagskránni sem er léttvægara og má stytta eða hnika til.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is