eyjan.is

Föstudagur 03.02.2012 - 09:01 - Ummæli ()

Björgun heimilanna miklu mikilvægara verkefni en fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja

Byrjað á öfugum enda segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hvað þola heimilin er rétta spurningin.

„Bankarnir sjálfir eiga því allt undir því að sátt náist og skuldastaða íslenskra heimila verði bærileg. Það er miklu mikilvægara verkefni heldur en til dæmis fjárhagsleg endurskipulagning einstakra fyrirtækja.“

Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ríkisstjórnin hafi spurt rangrar spurningar þegar óskað var eftir úttekt Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á hversu miklar niðurfærslur á skuldum heimilanna bankarnir gætu staðið undir.

Í Morgunblaðinu í dag færir Illugi rök fyrir að spurningin sem stjórnvöld áttu að spyrja hafi frekar átt að vera hversu mikla skuldsetningu heimilin þola.

Ef niðurstaðan er sú að íslensk heimili eru skuldsett umfram greiðslugetu, þá þarf að afskrifa meira af lánum heimilanna. Miklu skiptir að niðurstaða þessarar rannsóknar sé eins óumdeild og hægt er, deilur um þetta mál eru mjög erfiðar og til þess fallnar að sundra þjóðinni.

Ef niðurstaðan er sú að þrátt fyrir þær afskriftir sem þegar hafa verið gerðar, séu íslensk heimili enn svo skuldsett að stór hluti þeirra getur ekki staðið undir afborgunum, þá er ljóst að bankakerfið fær ekki allt þetta fé til baka. Í því tilviki er eins gott að taka frumkvæðið og afskrifa þar til jafnvægi næst. Enginn friður verður í samfélaginu nema almenningur sé þeirrar skoðunar að þessum málum sé skipað af sanngirni og að fólki sé ekki haldið í heljargreipum í tilgangsleysi.

Bankakerfið á allt undir því að efnahagslífið sé heilbrigt og grundvöllur þess er að almennur stuðningur sé við meginstoðir markaðshagkerfisins. Eignarrétturinn, réttarríkið, sanngjarnar leikreglur og sú vissa að ef menn leggja hart að sér, þá uppskeri þeir eins og þeir sái, eru á meðal þessara meginstoða. Sú óánægja sem hefur farið vaxandi vegna uppgjörs á skuldum heimilanna grefur undan markaðshagkerfinu og tefur fyrir efnahagsbatanum. Bankarnir sjálfir eiga því allt undir því að sátt náist og skuldastaða íslenskra heimila verði bærileg. Það er miklu mikilvægara verkefni heldur en til dæmis fjárhagsleg endurskipulagning einstakra fyrirtækja.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is