eyjan.is

Föstudagur 03.02.2012 - 10:39 - Ummæli ()

Jóhanna: Leita allra leiða fyrir heimili landsins. Allt önnur og betri lánakjör innan ESB.

Forsætisráðherra segir enn leitað leiða til að aðstoða skuldsett heimili og gerir sér grein fyrir að margir séu enn í miklum vandræðum

Ríkisstjórnin leitar allra leiða til að koma enn frekar til móts við skuldug heimili landsins og finna lausnir að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Hún segist gera sér fullkomlega grein fyrir erfiðleikum margra þrátt fyrir að þegar hafi verið gripið til einna 60 aðgerða af hálfu stjórnvalda.

Forsætisráðherra sat fyrir svörum í morgunútvarpi Rásar 2 og var þar spurð út í sífellda gagnrýni á hendur stjórnvöldum vegna skorts á úrræðum til handa skuldugum heimilum. Nýleg rannsókn sýnir að hartnær helmingur heimila á mjög erfitt með að ná endum saman um hver mánaðarmót og ýmsir segja aðgerðir stjórnvalda aðeins lélegan plástur á vandann en ekki lausn.

Jóhanna benti á að lánakjör almennings í löndum Evrópusambandsins væru mikið mun betri en hérlendis. Við inngöngu ætti hagur heimila að batna almennt til muna. Hérlendis sé verðtryggingin vandamálið og virki sem belti og axlabönd fyrir lánveitendur. Slíkt verði úr myndinni við aðild að Evrópusambandinu.

„Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að þó við séum búin að geraótalmarga hluti, 50 til 60 aðgerðir og setja í það alla þessa milljarða, að þá er stór hópur fólks sem býr við mikla erfiðleika og ég hef mikla samúð með þessu fólki.“

„En við verðum líka að muna það að fyrir hrun var stór hópur fólks líka í miklum vandræðum. Það voru kannski fimmtán til sextán þúsund manns og eru núna kannski 10 þúsund fleiri þannig að það var fólk í vandræðum. Við höfum líka verið að gera fullt af hlutum til að koma til móts við þetta fólk og við erum ekki hætt.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is