eyjan.is

Viðskipti Föstudagur 03.02.2012 - 14:55 - Ummæli ()

Kolsvört skýrsla sýnir ótrúlegt tap lífeyrissjóðanna. 479 þúsund milljónir í súginn

Lífeyrissjóðirnir töpuðu 479 milljörðum króna á árunum 2008 til 2010. Þetta eru niðurstöður rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna sem kynnti skýrslu sína á Grand Hóteli í dag.

Mesta tapið er til komið vegna viðskipta í hlutabréfum Kaupþings, Exista og Bakkavör.

Í skýrslunni eru gerðar margvíslegar athugasemdir við starfsemi sjóðanna og er það niðurstaða nefndarinnar að endurskoða þarf lög um lífeyrissjóði. Fram kom í mál nefndarmanna að fjárfestingaheimildir lífeyrissjóðanna væru óskýrar og ákvæði um áhættu eru ófullkomin.

Þá var óvarlega farið með gjaldmiðlavarnir lífeyrissjóðanna, en 36 milljarðar töpuðust á gjaldmiðlavarnarsamningum.

Sjóðirnir töpuðu alls 100 milljörðum á íslenskum bönkum og sparisjóðum, 90 milljörðum á skuldabréfum fyrirtækja, 199 milljörðum á innlendum hlutabréfum og 6 milljörðum á erlendum verðbréfum.

Einnig kom fram í máli nefndarmanna að um helming tapsins mætti rekja til félaga tengdum Baugi og Exista. Eru Glitnir og Kaupþing þar með taldir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is