eyjan.is

Föstudagur 03.02.2012 - 09:52 - Ummæli ()

Tæplega 90 prósent Pólverja hérlendis geta ekki haldið uppi samræðum á íslensku

Fjölmargir Pólverjar störfuðu í byggingageiranum hérlendis áður en hrunið skall á. Stór hópur þeirra er nú atvinnulaus en heldur kyrru fyrir

Ný könnun meðal pólskra félagsmanna stéttarfélagsins Eflingar leiðir í ljós að einungis þrettán prósent þeirra telja sig geta haldið uppi samræðum á íslensku. Veldur þetta áhyggjum manna enda er um 20 prósenta atvinnuleysi meðal Pólverja sem hér búa.

Hagfræðingur Eflingar, Harpa Ólafsdóttir, segir við Morgunblaðið að þessi staðreynd sé áhyggjuefni og vafalaust ein ástæða þess hve margir Pólverjar séu hlutfallslega atvinnulausir. Vankunnátta í íslensku máli skerði töluvert öll tækifæri til atvinnuleitar. Sýnir enda sama könnun Eflingar að atvinnulausir Pólverjar sækja um mun færri störf en atvinnulausir Íslendingar.

Tungumálaörðugleikar gætu skýrt hvers vegna atvinnuleysi meðal Pólverja hérlendis er talið um 20 prósent eða langt yfir landsmeðaltali. Eru Pólverjar langfjölmennasti hópur útlendinga sem búa hérlendis en rannsókn sem gerð var fyrir skömmu sýndi að þrátt fyrir mikið atvinnuleysi væri ekkert fararsnið á þeim Pólverjum sem hér búa.

Sýna nýjar tölur Hagstofu Íslands um fólksflutninga til og frá landinu á nýliðnu ári að nokkurt jafnvægi er í fjölda brott- og aðfluttra útlendinga til landsins þrátt fyrir að mun fleiri Íslendingar hafi flutt frá landinu en til á sama tímabili. Hingað fluttust tæplega 2.800 útlendingar í fyrra og með sama áframhaldi flytjast fleiri til landsins en frá innan skamms. Innflytjendur af erlendum uppruna eru nú tæplega 26 þúsund talsins í heildina.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is