eyjan.is

Viðskipti Föstudagur 03.02.2012 - 19:53 - Ummæli ()

Tap lífeyrissjóða ekki eðlilegt og grunsemdir vakna um tengsl stjórnenda og fyrirtækja

Gríðarlegt tap lífeyrissjóðanna vegna hrunsins, upp á tæplega fimm hundruð milljarða króna, er ekki eðlilegt og grunsemdir og spurningar vakna um hagsmuni stjórnenda þeirra.

Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinsti grænna, í tilefni af útkomu skýrslu Rannsóknarnefndar um lífeyrissjóðina í dag.

Björn Valur bendir á heimasíðu sinni sérstaklega á að 77 milljarðar hafi tapast á viðskiptum við Baug og tengda aðila og 171 milljarðar hafi tapast á Exista og tengdum aðilum. Samtals hafi tap lífeyrissjóðanna á þessum tveim aðilum numið alls 2/3 af öllu tapi þeirra á árunum 2008 – 2010.

Það er ekki eðlilegt og hlýtur að vekja upp grunsemdir og spurningar um hagsmuni stjórnenda og tengsl þeirra við þau fyrirtæki sem fjárfest var í.

Þeim spurningum þarf að svara sem fyrst.

Þeim grunsemdum þarf að eyða sem fyrst – eða staðfesta þær.

Annað er óviðunandi með öllu.

Björn Valur segir að eigendur lífeyrissjóðanna eigi skýlausan rétt á að fá allar upplýsingar upp á borðið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is