eyjan.is

Föstudagur 03.02.2012 - 13:57 - Ummæli ()

Þjóðin klofin í herðar niður gagnvart Landsdómsákæru. Stjórnmálaskoðanir og tekjur hafa áhrif

Landsmenn skiptast í tvær nánast jafnstórar fylkingar, þegar spurt er hvort fella eigi niður Landsdómsákæru á hendur Geir Haarde. Því hærri tekjur sem fólk hefur, þeim mun meiri er stuðningur við að fella niður ákæruna.

Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup sem greint var frá í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.  Fólk var spurt hvort það væri þeirrar skoðunar að fella ætti niður ákæru á hendur Geir H. Haarde eða ekki. 52% prósent aðspurðra vildu að ákæran yrði felld niður, 48% ekki. Ekki er marktækur munur á stærð hópanna.

Í frétt RÚV sagði ennfremur:

Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar eftir bakgrunnsþáttum eru einkum tvær breytur sem hafa áhrif á viðhorf fólks; tekjur og hvernig það myndi kjósa ef gengið yrði til Alþingiskosninga nú. Því hærri tekjur sem fólk hefur, þeim mun líklegra er að það vilji að ákæran verði felld niður. Rúmlega tveir þriðju hlutar þeirra sem eru með milljón eða meira í fjölskyldutekjur á mánuði vilja að ákæran verði felld niður en rúmlega fjórir af hverjum tíu sem eru með minna en 250 þúsund krónur vilja það.

Tæplega einn af hverjum fimm sem styðja ríkisstjórnina vill að ákæran verði felld niður en ríflega sjö af hverjum tíu sem styðja hana ekki vilja það. Stuðningurinn við að fella niður ákæruna er mestur hjá þeim sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði til Alþingis nú. Ríflega 94% þeirra vilja fella ákæruna niður.

Liðlega sjö af hverjum tíu sem myndu kjósa Framsóknarflokkinn telja að fella ætti ákæruna niður en aðeins tæplega fjórðungur þeirra sem myndu kjósa Samfylkinguna og um sex prósent þeirra sem myndu kjósa Vinstrihreyfinguna – grænt framboð.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is