eyjan.is

Laugardagur 04.02.2012 - 18:18 - Ummæli ()

Björt framtíð með formann og stjórnarformann. Fyrrverandi framsóknarmenn í stjórninni

Jón Gnarr og Heiða Helgudóttir. Fara nú líka í landsmálin.

Nýjasti stjórnmálaflokkur landsmanna sem formlega var stofnaður í dag á fjölmennum fundi á Kex Hostel brýtur blað með ýmsum hætti. Þannig eru formenn flokksins í raun tveir og eiga þeir að starfa saman og vera sammála um stórar ákvarðanir. Þá telur stjórn flokksins um 40 manns. Áberandi í þeim hópi, auk borgarfulltrúa og forvígismanna Besta flokksins í Reykjavíkurborg, eru fyrrverandi flokksmenn í Framsóknarflokknum.

Á stofnfundinum í dag var samþykkt almenn yfirlýsing um stjórnmál, sem lesa má á heimasidan.is og reglur fyrir flokkinn.

Á meðal nýbreyttni í skipulagi má nefna, að flokkurinn mun reka málefnastarf sitt á netsíðu, allan sólarhringinn, allan ársins hring, og í forystu flokksins eru tveir formenn, sem skulu starfa saman og vera sammála um stórar ákvarðanir.

Kallast annar þeirra formaður, og er talsmaður flokksins, og hinn stjórnarformaður, og leiðir málefnastarf hans.

Formaður var kjörinn Guðmundur Steingrímsson alþingismaður.

Stjórnarformaður var kjörin Heiða Kristín Helgadóttir framkvæmdastjóri.

Í stjórn voru kjörin fjörutíu manns. Þau eru:

Andrés Pétursson formaður Evrópusamtakanna
Auður Hermannsdóttir aðjúnkt í viðskiptafræði
Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri þjónustusviðs BL
Borghildur Sturludóttir arkitekt
Brynhildur S. Björnsdóttir framkvæmdastjóri
Diljá Ámundadóttir auglýsingatengill
Einar Örn Benediktsson tónlistarmaður
Einar Skúlason markaðsstjóri hjá 365
Eldar Ástþórsson markaðsstjóri hjá CCP
Elvar Örn Arason alþjóðafræðingur
Elvar Jónsson bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð
Erla Karlsdóttir varabæjarfulltrúi í Kópavogi
Friðrik Rafnsson þýðandi
Gaukur Úlfarsson kvikmyndagerðarmaður og dúlla
G. Valdimar Valdemarsson framkvæmdastjóri Ferli ehf.
Gestur Guðjónsson umhverfisverkfræðingur
Guðlaug Kristjánsdóttir sjúkraþjálfari
Guðrún Guðlaugsdóttir blaðamaður
Harpa Elísa Þórsdóttir framleiðandi
Halldór Zoega fjármálastjóri Keilis
Hlín Bolladóttir bæjarfulltrúi á Akureyri
Hlini Melsted kerfisstjóri
Hulda Proppé mannfræðingur
Jón Gnarr borgarstjóri
Magnús Þór Jónsson skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar
Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona
Óttarr Proppé borgarfulltrúi og tónlistarmaður
Preben Pétursson framkvæmdastjóri á Akureyri
Regína Ásvaldsdóttir framkvæmdastjóri
Sandra Hlíf Ocares lögfræðingur
Sigurður Björn Blöndal tónlistarmaður
Sigrún Gunnarsdóttir lektor í hjúkrunarfræði
Sigrún Sól Ólafsdóttir leikstjóri
Solveig Thorlacius mannfræðingur
Snorri Baldursson þjóðgarðsvörður
Stefán Már Guðmundsson aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar
Valur Freyr Einarsson leikari
Vigdís Hrefna Pálsdóttir leikkona
Þorsteinn Másson sjómaður á Ísafirði
Þórunn Einarsdóttir fasteignasali í Reykjanesbæ

Meðal athyglisverðra nafna á listanum, auk borgarstjórans Jóns Gnarr, aðstoðarmanns hans Sigurðar Björns Blöndals og borgarfulltrúanna Óttars Proppé og Einars Arnar Benediktssonar má nefna nokkra framsóknarmenn sem fylgja greinilega Guðmundi Steingrímssyni úr flokknum. Í þeim hópi má nefna Einar Skúlason sem skipaði efsta sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar en náði ekki kjöri, G. Valdimar Valdimarsson sem var lengi formaður málefnanefndar Framsóknarflokksins, Gest Guðjónsson umhverfisverkfræðing og Andrés Pétursson formann Evrópusamtakanna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is