eyjan.is

Laugardagur 04.02.2012 - 11:21 - Ummæli ()

Magnús Geir Eyjólfsson stjórnmálafræðingur nýr ritstjóri Eyjunnar

Magnús Geir Eyjólfsson

Magnús Geir Eyjólfsson blaðamaður og stjórnmálafræðingur hefur verið ráðinn ritstjóri Eyjunnar.

„Þetta er virkilega spennandi verkefni, enda hefur Eyjan verið einn frjóasti vettvangur íslenskrar þjóðmálaumræðu undanfarin ár,“ segir Magnús Geir sem hefur störf á næstu dögum.

„Það er von mín að okkur takist í góðu samstarfi við lesendur Eyjunnar að þróa vefinn áfram og gera hann enn betri. Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt.“

Á næstunni verða ýmsar breytingar gerðar á Eyjunni sem ætlað er að efla vefinn og auka fjölbreytni í efnistökum. Aukin áhersla verður á fréttir um stjórnmál og viðskiptalífið og þá verður sjónum í auknum mæli beint að erlendum vettvangi með reglulegum fréttaskýringum.

Magnús Geir er fæddur 18. nóvember, 1980. Hann útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi og lauk BA prófi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands árið 2004. Hann útskrifaðist með MA gráðu í alþjóðasamskiptum frá Waseda háskóla í Tókýó árið 2006. Hann hefur meðal annars starfað á Morgunblaðinu, Blaðinu og Stöð 2, en undanfarin ár á Pressunni.

Magnús Geir er í sambúð með Hildi Báru Leifsdóttur nema í hjúkrunarfræði og saman eiga þau tvö börn, Hákon Martein og Friðriku Rögnu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is