Núna skil ég, hvers vegna Ögmundur Jónasson ráðherra vill friða Geir Haarde
Núna skil ég, hvers vegna Ögmundur Jónasson ráðherra vill friða Geir Haarde. Þeir eru báðir hrunverjar.
Þetta skrifar Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri á heimasíðu sína. Tilefnið er ný skýrsla Rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna sem sýnir ævintýralegt tap þeirra á undanförnum árum. Mestu virðist Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins hafa tapað, en þar var Ögmundur Jónasson lengi stjórnarformaður.
Um þetta skrifar Jónas:
Ögmundur var stjórnarformaður lífeyrissjóðsins, sem mestu tapaði í hruninu, yfir hundrað milljörðum. Því er ekki skrítið, að Ögmundur telji yfirstétt hrunsins enga ábyrgð bera. Hún hafi bara fengið hrunið í hausinn, án þess að hafa neitt til saka unnið. Ögmundur hafi bara óvart tapað hundrað milljörðum á kostnað þjóðarinnar, rétt eins og Geir H. Haarde tapaði nokkur hundruð milljörðum þjóðarinnar í aðdraganda hrunsins. Þeir eru fóstbræður í skuld sinni við okkur, sannir hrunverjar báðir tveir.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
