eyjan.is

Sunnudagur 05.02.2012 - 10:00 - Ummæli ()

Ekki benda á okkur. Stjórn lífeyrissjóðs hafnar vangaveltum um hugsanleg lögbrot

Ekkert ólöglegt við framvirka gjaldeyrisvarnasamninga segir stjórn lífeyrissjóðs verslunarmanna

Þeim vangaveltum í kjölfar nýrrar skýrslu Rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna að sjóðirnir hafi hugsanlega framið lögbrot með kaupum á gjaldeyristryggingum er afdráttarlaust vísað á bug af hálfu stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna.

Stjórn sjóðsins, sem tapaði 80 milljörðum króna við hrunið, sendi frá sér tilkynningu í kjölfar útgáfu skýrslu Rannsóknarnefndarinnar þar sem færð eru rök fyrir að sjóðurinn hafi í einu og öllu farið að lögum með kaupum á gjaldeyristryggingum árið 2008.

Ítrekað er að hvorki Fjármálaeftirlitið né aðrir hafi gert athugasemdir við slíka samninga sem oftast er talað um sem afleiðusamninga. Heimildir séu í lögum um lífeyrissjóði til gerð slíkra samninga en gjaldmiðlavarnir miða að því að verja verðmæti erlendra eigna gagnvart sveiflum í gengi gjaldmiðla. Styrkist gengi íslenskrar krónu rýrnar verðmæti erlendra eigna lífeyrissjóða í krónum talið og slík rýrnun getur skert lífeyrisréttindi sjóðfélaga. Slíkt eigi engan veginn neitt skylt við spákaupmennsku að mati stjórnarmanna.

Þá hafnar stjórnin því einnig að hafa haft skammtímagróða að leiðarljósi í störfum sínum en Rannsóknarnefndin veltir því fyrir sér í skýrslunni. Þeir framvirku afleiðusamningar sem sjóðurinn gerði við viðskiptabankana fyrir hrunið hafi verið hugsaðir til langs tíma en ekki væntingum um skjótfenginn gróða.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is