eyjan.is

Sunnudagur 05.02.2012 - 12:09 - Ummæli ()

Hvað er að þessari þjóð spyr Stefán Snævarr. Hve mikið er blikkbeljudýrkunin að kosta?

Hvers vegna þurfa Íslendingar að eiga mikið fleiri einkabíla en aðrar þjóðir heimsins og hvað er það að kosta spyr Stefán Snævarr

Hve stóran þátt á blikkbeljudýrkun Íslendinga í mikilli skuldsetningu íslenskra heimila í dag spyr Stefán Snævarr, prófessor í heimsspeki, sem undrast stórum hvers vegna bílaeign Íslendinga er langt umfram það sem gerist í öðrum löndum heims að Bandaríkjunum meðtöldum.

Stefán vísar í tölur Heimsbankans um einkabílaeign sem sýna að hér eru 661 bifreið á hverja þúsund íbúa landsins. Það er verulega umfram bílaeign almennings annars staðar. Í Bandaríkjunum er hlutfallið 451 bifreið á hverja þúsund íbúa og í nágrannalöndum okkar í Skandinavíu er fjöldinn milli 337 í Danmörku upp í 464 bíla á hverja þúsund Svía.

Fyrir rúmum áratug kom ég við í íslenskum útgerðarbæ, 2000 manna plássi. Ég undraðist skelflegt útlit innfæddra, þeir voru akfeitir, luralegir, með föla, slæma húð og strý í hárstað.

Mér var sagt að ástæðan fyrir þessu væri sú að þeir færu ekki spönn frá rassi nema í bíl, færu milli húsa bílandi.

Þess ber að gæta að bílar eru mun dýrari í Noregi en á Íslandi, einnig eru almenningssamgöngur á Norðurlöndum betri en á Íslandi. En það skýrir ekki hvers vegna fólk í liltum kaupstað fer milla húsa í bílum, eitthvað hlýtur slíkt að kosta.

Ég spyr: Hvað kostar þetta bílabrjálæði þjóðina í elrendum gjaldeyri? Hve stóran þátt á blikkbeljudýrkunin í slæmri afkomu margra íslenskra heimila?

Hve margir Íslendingar missa heilsuna og deyja fyrir aldur fram vegna bílageðbilunarinnar? Hve mikinn aukakostnað mun heilbrigðiskerfið þurfa að bera vegna fáránlegrar bíladellu Íslendinga?

Hvað er að þessari þjóð?


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is