eyjan.is

Viðskipti Sunnudagur 05.02.2012 - 17:25 - Ummæli ()

Lilja vill fá rannsóknarnefnd um lífeyrissjóðina á fund með efnahags- og viðskiptanefnd

Lilja Mósesdóttir  alþingismaður hefur óskað eftir að fá Rannsóknarnefnd um starfsemi lífeyrissjóðanna á fund efnahags- og viðskiptanefndar til að greina frá niðurstöðum úttektar á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagaumhverfi lífeyrissjóðanna.

Vísar Lilja til þess að úttektarnefndin telji m.a. nauðsynlegt að heildarendurskoðun fari fram á lífeyrissjóðalögunum, einkum þeim köflum sem viðkoma fjárfestingum og fjárfestingarstefnu sjóðanna. Í niðurstöðum úttektarnefndarinnar komi auk þess fram alvarleg gagnrýni á lagasetningu Alþingis bæði fyrir og eftir 2008.

Í bréfi til formanns þingnefndarinnar nefnir Lilja sérstaklega til tvö dæmi um gagnrýni sem efnahags- og viðskiptanefndina þurfi að ræða og bregðast við:

1. „Sem dæmi má nefna, að hámarki fjárfestinga sjóðanna í hlutabréfum var breytt í áföngum úr 35% af hreinni eign til greiðslu lífeyris í 60%, síðast með lögum 28/2006. Bera breytingar á lífeyrissjóðalögunum með sér að Alþingi hafi fram að falli bankanna verið að bregðast við óskum hagsmunaaðila innan og utan stjórna lífeyrissjóða sem óskuðu eftir rýmri fjárfestingarmöguleikum. Aldrei hefði átt að koma til rýmkunar lagaheimildar til fjárfestingar í hlutabréfum á árunum 2004 og 2006 nema þá að sett væri skilyrði um að ákveðið hlutfall bréfanna væri erlent (Sjá kafla 5.1.2).“ (bindi 2.1, bls. 19)

2. „Með lögum nr. 123/2011 um breytingu á lífeyrissjóðalögunum er lífeyrissjóðum nú heimilt að fjárfesta í íbúðarhúsnæði og reka það, m.a. til útleigu. Ennfremur var lífeyrissjóðunum heimilað en þó ekki skyldaðir til að stofna félag um slíkan rekstur eða gera samning við einkaaðila um reksturinn. Virðast lífeyrissjóðirnir eftir þessar breytingar sjálfir geta keypt og staðið fyrir rekstri íbúðarhúsnæðis. Úttektarnefndinni sýnist þessi breyting vera í andstöðu við 20. gr. lífeyrissjóðalaganna og mjög varasamt fyrir sjóðina að haga slíkum rekstri á þann veg. Telur nefndin að þessi nýju ákvæði beri þess merki að þau séu tæpast sett í samráði við lífeyrissjóðina og séu gott dæmi um nauðsyn þess að semja lagaákvæði um fjárfestingarheimildir sjóðanna upp á nýtt eftir ítarlegar umræður.“ (bindi 2.1, bls. 21)


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is