eyjan.is

Sunnudagur 05.02.2012 - 13:54 - Ummæli ()

Ólína telur eðlilegt að stjórnarmenn áhættu- sæknustu lífeyrissjóðanna segi af sér

Enn sitja margir sömu aðilar í stjórnum lífeyrissjóða sem töpuðu miklum fjárhæðum við hrunið. Þeir ættu að segja af sér að mati þingmanns

Ólína Þorvarðardóttir, Samfylkingu, telur það eðlilega kröfu að þeir stjórnarmenn áhættusæknustu lífeyrissjóðana sem enn sitji í sætum sínum segi af sér í kjölfar nýrrar svartrar skýrslu um tap sjóðanna við hrunið.

Kom þetta fram í máli Ólínu á Silfri Egils í dag þar sem skýrsla Rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna var til umræðu. Þar tók hún undir þær skoðanir sem annars staðar hafa komið fram að skýrslan í raun gefi tilefni til annarrar skýrslu þar sem mörgum spurningum um starfsemi sjóðanna og stjórnarmanna þeirra sé enn ósvarað. Þá megi heldur ekki gleyma að skýrslan hafi verið unnin að tilstuðlan sjóðanna sjálfra.

„Þetta eru nákvæmlega sömu veikleikarnir [ í skýrslunni um sjóðina] og við sáum í öllu fjármálakerfinu þarna fyrir  hrun. Það er meðvirkni, áhættusækni, sjálfsánægja og vanhæfni. Mér finnst alveg fullkomlega gild krafa að þeir sem sátu í stjórnum þeirra sjóða sem sýndu mesta áhættusækni og vanhæfi að þeir stjórnarmenn segi af sér.“

Jón Magnússon, lögmaður og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar í pistli um sama mál og tiltekur þar nokkrar þær spurningar sem hann telur ósvarað eftir lestur skýrslunnar.

1. Það er ekki sagt frá dýru boðsferðunum sem stjórnarmenn og starfsmenn lífeyrissjóða fóru í á vegum banka og útrásravíkinga.
2. Það er ekki sagt frá hagsmunaárekstrum nema ör örlítið
3. Það er ekki sagt frá bruðlinu í lífeyrissjóðunum.
4. Það er ekki sagt frá ofurlaununum sem stjórnendur lífeyrissjóðanna voru með.

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er á sömu skoðun í nýjum Eyjupistli sínum. Brýn þörf sé á frekari rannsókn í kjölfar skýrslunnar.

Þar þarf að fara yfir starfsemi og stefnu sjóðanna frá 1997 þegar lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda voru sett til dagsins í dag.

Þar þarf að bera saman laga- og starfsumhverfi lífeyrissjóðanna við sjóðakerfi nágrannalanda okkar.

Þar þarf að skoða hugsanlega ábyrgð; stjórnenda, stjórnarmanna, endurskoðenda, eftirlitsaðila, stjórnmálamanna og ráðherra.

Strax.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is