eyjan.is

Sunnudagur 05.02.2012 - 22:14 - Ummæli ()

Séra Gunnar prestur í Digranesi vill verða biskup. Hann á að vaxa en ég að minnka!

Séra Gunnar Sigurjónsson prestur í Digraneskirkju í Kópavogi hefur ákveðið að gefa kost á sér í komandi biskupskosningum. Hann vill gera orð Jóhannesar skírara að einkunnarorðum sínum og leiðarljósi.

Í yfirlýsingu frá séra Gunnari segir:

„Hann á að vaxa en ég að minnka.“ (Jóh 3.30)

Þessi orð mælti Jóhannes skírari og vísaði þar til Jesú Krists. Það var köllun Jóhannesar að beina sjónum fólks til hans. Jóhannes sá það fyrst og síðast sem hlutverk sitt að greiða Jesú sjálfum veg á meðal fólks. Allt sem hann sagði og gerði þjónaði að því marki.

Þessi orð Jóhannesar skírara koma mér til hugar er ég lýsi nú yfir framboði mínu til embættis biskups Íslands. Þau vil ég gera að einkunnarorðum mínum og leiðarljósi.

Gunnar segir að hlutverk Þjóðkirkjunnar sé fyrst og síðast að greiða Jesú Kristi veg á meðal fólks, að miðla orði hans og kærleika hans í verki, ekki síst til þeirra sem halloka fara í samfélagi manna:

Það á að vera kirkjunni leiðarljós. Öll störf hennar eiga að miða að því einu og þjóna að því marki. Þar birtist líka hin eiginlega kirkja, þar sem hugsanir, orð og breytni fólks mótast af vilja Jesú Krists.

Þjóðkirkjan er einnig öðrum þræði stofnun. Sem slík axlar hún margvíslega ábyrgð og hefur ríkum skyldum að gegna í samfélaginu. Í því felast áskoranir og vandi í senn. Sem stofnun má kirkjan margt læra og bæta. Hún þarf að ástunda heilbrigða stjórnsýslu. En umfram allt þarf hún að miða skipulag sitt að því að geta tekist sem best á hendur það hlutverk sem henni er ætlað að sinna.

Þjóðkirkja sem hagar störfum sínum með það að marki að gera veg Krists sem mestan á meðal fólks er kirkja á réttri leið.   Sú kirkja er virðingarverð og eftirsóknarverð. Þeirri kirkju vil ég vinna það gagn sem mest ég má.

Ég býð mig ekki fram til embættis biskups Íslands vegna þess að ég telji mig vera betur til þess fallinn en aðra, heldur vegna þess að ég ber traust til alls þess góða fólks sem hefur hvatt mig áfram í starfi mínu. Ég vil taka höndum saman með þeim sem vinna vilja Þjóðkirkjunni til heilla með því að gera veg Krists sem mestan meðal fólks.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is