eyjan.is

Viðskipti Mánudagur 06.02.2012 - 22:36 - Ummæli ()

Gunnar Tómasson vill Neyðarlög #2. Yfirtaka á öllum skuldum heimila úr gömlu bönkunum

Ef vilji til raunhæfra aðgerða vegna skuldavanda heimilanna er til staðar, þá er lausnin til staðar, segir Gunnar Tómasson sem lengi hefur starfað sem hagfræðingur hjá Alþjóðabankanum í Washington.

Gunnar setur fram þá hugmynd á fésbókarsíðu sinni í kvöld að Alþingi samþykki Neyðarlög # 2 þar sem kveðið væri á um yfirtöku ríkisins á öllum skuldum heimila sem voru flutt úr gömlu bönkunum yfir í nýju bankana.

Gunnar vill að þetta sé gert á sama yfirtökuverði og nýju eigendurnir greiddu fyrir þær að viðbættum viðeigandi LIBOR vöxtum frá fyrri yfirtökudegi til hins síðari. Þannig væri þess gætt að ekki væri um óbætta eignaupptöku að ræða.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is