eyjan.is

Mánudagur 06.02.2012 - 08:31 - Ummæli ()

Fariði bara að rífast aftur um símaskrána. „Hér er allt undir kontról“

Hver kaus Arnar Sigmundsson til að ákveða hitt og þetta í íslensku þjóðfélaginu spyr Guðmundur Andri

„Þegar maður les viðbrögð forsvarsmanna lífeyrissjóðanna mætti ætla að allt það tap hafi verið innt af hendi af frábærri fagmennsku og trúmennsku. Nánast eins og allt hafi verið samkvæmt þrauthugsaðri áætlun. Þeir segja líka að þeir hafi vitað allt sem í skýrslunni stendur, ekkert komi þar á óvart – með öðrum orðum: hér er allt undir kontról. Fariði bara að rífast aftur um símaskrána.“

Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, er einn þeirra sem stingur niður penna vegna svartrar skýrslu um rekstur lífeyrissjóða landsins fyrir og eftir hrunið 2008 sem út kom í síðustu viku.

Fyrir utan að gagnrýna lokað lífeyrissjóðskerfið sem leiki sér með peninga íslensks launafólks og sé í raun aðeins skattheimta sem fólkið hafi ekkert um að segja finnur Guðmundur að því hversu mikil völd æðstu menn sjóðanna hafa yfir að ráða.

„Með vissu millibili fáum við að sjá Arnar Sigmundsson, sem virðist einhvers konar keisari í þessu kerfi, koma í sjónvarpið til þess að tilkynna okkur um ákvarðanir sínar og sinna manna um hvað beri nú að gera í landinu; hvaða vegi skuli leggja og hvaða gögn skuli sprengja – og hver veit ekki – og maður hugsar: Hver kaus hann? Er þetta ekki formaður samtaka fiskvinnslustöðva? Af hverju ræður hann yfir lífeyrissjóðunum?“

„Helgi Magnússon, stjórnarformaður í Lífeyrissjóði verslunarmanna er annað gott dæmi um þá menn sem þarna hafa komist til valda og áhrifa; sú glögga og stálminnuga Lára Hanna Einarsdóttir rifjaði upp á dögunum á bloggsíðu sinni grein sem hann skrifaði á síðasta ári þar sem hann rómaði mjög skattastefnuna í Rússlandi og þær jafnaðarhugmyndir sem liggja til grundvallar þjóðfélagsuppbyggingunni þar og en taldi skattheimtu að hætti norrænna landa vera argasta sósíalisma.“

„Auðvitað er fínt er umsvifamikill fjárfestir á borð við Helga Magnússon deili með okkur sýn sinni á samfélagið – sem er sú að auðmenn eigi að græða og gera það sem þeim sýnist við sínar nokkurn veginn skattfrjálsu tekjur – en maður spyr sig óneitanlega þeirrar spurningar hvort ráðlegt sé að maður með slík viðhorf og slíkan samfélagsþroska hafi svo mikið að segja yfir þeim peningum sem teknir eru af okkur launafólki.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is