eyjan.is

Mánudagur 06.02.2012 - 21:05 - Ummæli ()

Lífeyrissjóðsstjóri: Þetta voru vinnuferðir en ekki boðsferðir – Jafnvel þótt bankinn borgaði

Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR.

Framkvæmdastjóri LSR segir að ferðir á vegum bankanna og annarra fyrirtækja hafi ekki verið boðsferðir, heldur vinnuferðir, jafnvel þótt fyrirtækin hafi greitt allan kostnað.

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga (LH) var sá sjóður sem tapaði hæstu fjárhæðunum í bankahruninu, eða rúmum 100 milljörðum króna.

Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR og LH, sat fyrir svörum í Kastljósi í kvöld og var þar meðal annars spurður út í þær boðsferðir sem starfsmenn sjóðsins þáðu. Þær voru 30 talsins, að því er fram hefur komið á Alþingi.

Haukur sagði það stefnu lífeyrissjóðsins að þiggja ekki boðsferðir. Hins vegar væri það matsatriði hver ætti að standa straum af kostnaði af þeim ferðum sem fyrirtæki bjóða til að kynna starfsemi sína. Niðurstaðan hafi verið sú að það væri eðlilegra að fyrirtækin gerðu það.

„Starfsmennirnir sem fóru í þessar ferðir, þeir voru ekki að þiggja neitt boð. Það er megin atriðið. Þess vegna eru þetta engar boðsferðir. Þeir voru að fara í vinnuferð og það eru engir fjárhagslegir hagsmunir af því hvort að fyrirtækið sem er að kynna starfsferðina borgar þetta eða hvort að lífeyrissjóðurinn borgar þetta.‟

Aðspurður hvort það væri rétt túlkun að það væri ekkert óeðlilegt að þiggja boðsferð af banka sem hefur hagsmuni af því að nálgast fé sjóðsins, svaraði Haukur:

„Nei, við lítum ekki á það sem boðsferð.‟

- Jafnvel þótt bankinn borgi?

„Ef við erum að tala um boðsferð, hver þiggur þá boðið? Er það starfsmaðurinn sem er sendur í þessa vinnuferð, er hann þá orðinn sá sem er að þiggja boðið? Það sem kannski skiptir mestu máli er að við höfum tekið það til endurskoðunar.‟

sagði Haukur og bætti síðar við:

„Ef að ég sem framkvæmdastjóri sjóðsins kem inn á eignastýringuna hjá mér og segi þar við starfsmann; „Núna er þetta fyrirtæki að kaupa starfstöð erlendis – það getur verið verksmiðja, það getur verið verðbréfafyrirtæki eða hvað það er – getur þú ekki farið og skoðað þetta og skilað skýrslu þegar þú kemur til baka?‟ Er starfsmaðurinn að fara í boðsferð? Ég segi nei. Hann var að fara í vinnuferð.‟


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is