eyjan.is

Þriðjudagur 07.02.2012 - 20:46 - Ummæli ()

Greitt alla tíð í lífeyrissjóði en njóta sömu greiðslna og þeir sem það gerðu aldrei

Greiðslur í lífeyrissjóði um áratugaskeið eru ekki að skila fólki betri kjörum en að gera það ekki þar sem slíkar greiðslur skerða greiðslur úr Tryggingastofnun

Þeir einstaklingar sem lítið eða ekkert hafa greitt í lífeyrissjóði njóta engu að síður svipaðra greiðslna frá Tryggingastofnun og þeir sem fá greiddan ellilífeyri frá lífeyrissjóðum sínum. Tekjur kvenna eru þær sömu en karlar sem njóta ellilífeyris fá ellefu þúsund krónum hærri upphæð en hinir sem engin réttindi hafa.

Áratuga greiðslur fólks í lífeyrissjóði eru því einskis virði að því er fram kom í fréttum RÚV sem farið hefur yfir hvað greiðslur í lífeyrissjóðina skilar þeim er greiða samviskusamlega allt sitt líf.

Tekur fréttastofan dæmi af eldri borgara sem býr einn með engar aðrar tekjur. Sá einstaklingur fær greiddar 174 þúsund krónur mánaðarlega frá Tryggingastofnun eigi viðkomandi engan rétt í lífeyrissjóðum. Konur sem greitt hafa i lífeyrissjóð og eiga þar rétt fá að meðaltali 55 þúsund krónur þaðan meðan karlar fá að meðaltali 116 þúsund krónur.

Lífeyrissjóðsgreiðslurnar skerða hins vegar greiðslur frá Tryggingastofnun og er niðurstaðan sú að réttindalausir njóta sömu upphæðar þegar upp er staðið og hinir sem greitt hafa reglulega í lífeyrissjóði.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is