Hagspá ASÍ: Afar hægt gengur að vinna bug á atvinnuleysi – Staða heimila vænkast
Atvinnuleysi fer ekki niður fyrir 5 prósentin fyrr en árið 2014, segir í nýjustu hagspá ASÍ. Þrátt fyrir það segir í hagspánni að staða heimilanna hafi og muni vænkast verulega frá því sem áður var.
Hagdeild ASÍ birti í dag endurskoðaða hagspá sína fyrir árin 2012 til 2014. Þar segir að viðsnúningur í íslensku efnahagslífi í fyrra hafi verið meiri en gert var ráð fyrir. Mældist hagvöxtur 3,1 prósent og er áætlað að hann verði á bilinu 1,4 til 2 prósent næstu þrjú árin.
Staðan á vinnumarkaði er og verður áfram erfið, samkvæmt spánni. Áætlað er að meðalatvinnuleysi í ár verði 6,6 prósent. Það fari síðan hægt minnkandi. Atvinnuleysið verði 5,6 prósent á næsta ári og komið niður í 4,9 prósent árið 2014. Kjarasamningar gerðu ráð fyrir að atvinnuleysi yrði komið niður fyrir 5 prósent í árslok 2013, en samkvæmt þessu er áætlunin ári á eftir áætlun.
Ársverkum fjölgaði um 2.340 störf í fyrra, en þessi fjölgun er fyrst og fremst til komin vegna lengri vinnutíma. Þetta þýðir að fyrirtæki nýta betur þá starfskrafta sem þau hafa nú þegar yfir að ráða, áður en nýtt fólk er ráðið til starfa.
Í hagspánni segir jafnframt að staða heimilanna fari hægt batnandi og þau séu nú byrjuð að rétta úr kútnum eftir þrengingar síðustu ára. Er það meðal annars rakið til hægt minnkandi atvinnuleysis, hækkun launa í kjarasamningum, niðurfærslu skulda svo og lengri vinnutíma.
Jafnframt segir að skuldir heimilanna hafi lækkað síðustu tvö ár. Þær munu lækka enn frekar á næstu misserum þar sem enn eigi eftir að afgreiða margar umsóknir um greiðsluerfiðleikaúrræði.
Verðbólgan er mun hærri nú en gert var ráð fyrir í haust. Þá var talið að verðbólgan færi hæst í 4,2 prósent næstu þrjú árin, en hún mældist 6,5 prósent í janúar. Hefur hún ekki verið hærri síðan í maí 2010. Þar munar mest um hækkandi húsnæðis- og bensínverð og hækkanir á opinberum gjöldum.
Reiknað er með að verðbólga nái hámarki í byrjun yfirstandandi árs en lækki hratt næstu misserin. Verður hún komin niður fyrir 2 prósent í lok ársins 2014.
Þótt krónan hafi verið í stöðugu veikingarferli frá því í október telur hagdeild ASÍ engu að síður en að krónan muni styrkjast um 5 prósent á spátímanum, þannig að gengi hennar gagnvart evru verði um 152. Hins vegar er ekki útlit fyrir að hægt verði að afnema gjaldeyrishöftin að fullu með tilheyrandi óhagræði, svo sem háum viðskiptakostnaði og glötuðum fjárfestingatækifærum.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
