eyjan.is

Þriðjudagur 07.02.2012 - 16:25 - Ummæli ()

Siggi stormur í framboð með Lilju: Nafnið er Samstaða og listabókstafurinn er C

Samstaða verður nafn á nýju framboði Lilju.

Flokkur Lilju Mósesdóttur hefur fengið nafnið Samstaða – flokkur lýðræðis og þjóðar. Meðal þeirra sem standa að framboðinu með Lilju er veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarsson.

Lilja kynnti flokkinn, sem stofnaður var í Borgarfirði þann 15. janúar, á blaðamannafundi í Iðnó í dag. Flokkurinn hefur þegar fengið listabókstafinn C og verða appelsínugulur og hvítur ráðandi litir í framboðsefni flokksins.

Þau sem kynntu framboðið auk Lilju voru þau Sigurður Þ. Ragnarsson, Sigurjón Norberg Kærnested, Ragný Þóra Guðjohnsen og Agnes Arnardóttir. Auk þeirra voru 11 manns í undirbúningshópi fyrir framboðið.

Lilja sagði flokkinn boða uppstokkun í stjórnmálum og gera kröfu um gagngerar breytingar á samfélaginu. Hún segir flokkinn eiga að höfða til kjósenda sem hafa fengið nóg af spillingu í samfélaginu og misbýður misskiptingin.

Ætlunin er að bjóða fram í öllum kjördæmum og verða haldnir kynningarfundir víðs vegar um landið á næstu misserum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is