eyjan.is

Viðskipti Þriðjudagur 07.02.2012 - 11:35 - Ummæli ()

Stofnandi Express: Pálmi mætti fyrstur á brunasöluna eftir að hafa kaffært okkur

Pálmi Haraldsson, núverandi eigandi Iceland Express.

Einn stofnenda flugfélagsins Iceland Express segir að Pálmi Haraldsson hafi tekið yfir félagið á gjafaverði, fyrst og fremst fyrir tilstilli Samkeppniseftirlitsins. Hann hafi átt ríkan þátt í að kaffæra félagið þar sem hann sat í stjórn Icelandair, en var fyrsti maður á brunaútsöluna.

Ólafur Hauksson skrifar harðorða grein í Morgunblaðið þar sem hann gagnrýnir harkalega framgöngu Icelandair, en ekki síður Samkeppniseftirlitsins og dómstóla. Átta ár eru liðin síðan Express kærði Icelandair fyrir brot á samkeppnislögum, vegna hinna svokölluðu netsmella. Enn hefur ekki fengist endanleg niðurstaða í málið.

Lögmenn Icelandair hafa varla getað leynt hlátri sínum yfir vandræðaganginum, enda á góðri leið með að fá flugfélagið endanlega sýknað af því að hafa nokkuð gert á hlut Iceland Express.

Út frá sjónarhóli Iceland Express stundaði Icelandair aftur á móti grimm undirboð með því að selja flugsæti til Lundúna og Kaupmannahafnar að meðaltali 950 krónum undir kostnaðarverði.

Kórvillan í þeirri nálgun er sú að ekkert flugfélag selur öll flugsæti á kostnaðarverði. Flugsæti eru enn síður seld á lægsta verði rétt fyrir brottför, líkt og Icelandair stundaði grimmt. Þá eru þau seld á hæsta verði. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi hins vegar ekkert athugavert við að Icelandair seldi flugsæti á 16.900 kr. – fram og til baka – til London og Kaupmannahafnar tveimur dögum fyrir brottför. Það var nokkuð sem Icelandair hafði aldrei gert áður en samkeppnin hófst af hálfu Iceland Express.

Markmiðið Icelandair með þessum viðskiptaháttum var einfalt, segir Ólafur, að kaffæra Iceland Express. Hvorki Samkeppnisyfirvöld né héraðsdómur virðast á sama máli.

Lái hver sem vill héraðsdómaranum sem komst að þessari niðurstöðu. Ekki aðeins hafði hin samkeppnishamlandi áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfest að selja mætti öll sætin á kostnaðarverði, óháð brottfarartíma, heldur hafði dómarinn sprenglærða meðdómendur sem staðfestu þessa nálgun.

Annar meðdómandinn er doktor í rekstrarhagfræði, hinn doktor í lögum og kenna báðir við Háskóla Reykjavíkur. Rekstrarhagfræðingurinn verður líklega seint ráðinn í tekjustýringu hjá flugfélagi sem ekki vill fara lóðbeint á hausinn.

Ólafur gagnrýnir sérstaklega orð Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, sem lét hafa eftir sér á sínum tíma að undirboð Icelandair hafi ekki haft áhrif á eignarhald stofnenda Iceland Express, heldur hafi félagið fengið kjölfestufjárfesti. Þetta þykja Ólafi nöturlegar kveðjur.

Sá var Pálmi Haraldsson, hinn geðþekki útrásarvíkingur, fyrrum varaformaður stjórnar Icelandair. Hann hafði beitt sér af miklum móð í stjórn Icelandair fyrir aðgerðum fyrirtækisins gegn Iceland Express. Seldi síðan hlutabréfin í Icelandair þegar búið var að veikja Iceland Express nógu mikið og mætti fyrstur manna á brunaútsöluna. Eins og hendi væri veifað hættu undirboð Icelandair og fargjöld beggja félaganna hækkuðu hressilega. Með kveðju til neytenda frá Samkeppniseftirlitinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is