eyjan.is

Þriðjudagur 07.02.2012 - 14:42 - Ummæli ()

Svartsýnn Castro: Heimurinn hefur aldrei verið verri – Sér fram á miklar hörmungar

Þetta var í fyrsta skipti í tæpt ár sem Castro kemur fram á opinberum vettvangi.

Fídel Castro, fyrrum einræðisherra Kúbu, er afar svartsýnn á framtíðarhorfur heimsmálanna og segir kjarnorkustyrjöld nær óumflýjanlega.

Castro kom fram í kúbönskum fjölmiðlum í gær í tilefni útgáfu bókar hans, Fidel Castro Ruz: Guerilla of Time. Hvorki meira né minna en sex tíma dagskrá dugði undir kynninguna þar sem Castro deildi visku sinni með fyrrum þegnum sínum. Virtist hann ágætlega haldinn þrátt fyrir veikindi sín og hélt langar einræður.

Castro var ómyrkur í máli þegar hann ræddi um þróun heimsmálanna.

„Hvað mun gerast í Íran? Hvað mun gerast í Austurlöndum nær? Hvað gerist í Sýrlandi?‟

spurði Castro og fullyrti að Barack Obama hefði ekki lengur stjórn á Bandaríkjunum. Þeim væri í raun stjórnað af „yfirstjórn“ sem ræður ekki heldur við yfirvofandi hættuástand.

„Staðan er erfið, erfiðari en nokkru sinni,‟

sagði Castro sem um hríð hefur spáð kjarnorkustríði milli Bandaríkjanna, Íran og Ísraels.

„Skylda okkar er sú að berjast fram á síðustu stundu. Ef það eru ekki nema 10 ár eftir, þá berstu í þessi 10 ár, fyrir landið þitt, fyrir aðra og fyrir mannkynið.‟


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is