eyjan.is

Miðvikudagur 08.02.2012 - 13:15 - Ummæli ()

Eru engir speglar í ráðuneytinu? Ögmundur þarf að horfa vel og lengi í einn slíkan

„Skyldu engir speglar vera í innanríkisráðuneytinu?‟ spyr Illugi Jökulsson sem segir að Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra þurfi að horfast djúpt í augu við sjálfan sig. Hann hafi hugsanlega smitast af því sem kallast máttsýki.

Þetta segir Illugi í nýjustu færslu sinni hér á Eyjunni, þar sem hann gerir viðtalið við Ögmund í Kastljósi að umræðuefni. Hrósar hann Helga Seljan sérstaklega fyrir frammistöðu sína, hann hafi haldið ró, sinni virðingu og sóma þrátt fyrir að hafa mætt „vel smurðum vélbyssukjafti‟.

Illugi er hins vegar ekki jafn hrifinn af frammistöðu Ögmundar, sem um árabil hefur verið í sérstöku uppáhaldi hjá honum.

Skyldu engir speglar vera í innanríkisráðuneytinu?

Það mætti ætla. En ef þeir eru þar þrátt fyrir allt, þá myndi ég ráðleggja Ögmundi að nema staðar við einn þeirra.

Og horfast djúpt í augu við sjálfan sig.

Vita hvort hugsanlega geti verið að einhvers staðar djúpt í augnkrókunum leynist merki um að hann kynni að hafa smitast af því sem Gagga heitin Lund kallaði svo skemmtilega máttsýki.

Illugi undrast þá stefnu sem Ögmundur hefur tekið í hinum ýmsu málum undanfarin misseri. Þannig finnst Ögmundi nú mikilvægara að vernda möguleg mannréttindi fyrrverandi valdsmanns, fremur en að vernda þau mannréttindi þjóðarinnar hvort þessi sami valdsmaður hafi gerst brotlegur við lög um ráðherraábyrgð.

Hann hafi áður „fimbulfambað‟ um ferðafíkn opinberra starfsmanna og nú, þegar hann er kallaður í sjónvarpið til að svara réttmætum spurningum, grípur hann til gamalreyndra vopna sem valdhafar fyrri tíma hafa beitt.

Ögmundur Jónasson á að vita það manna best, að það eina sem íslenska þjóðin þarf á að halda núna, eru valdhafar sem geta svarað af einlægni, hreinskipti og umfram allt auðmýkt – valdhafar sem ekki snúast af offorsi gegn þeim sem spyrja spurninga, og ekki sýna yfirgang þeim sem gagnrýna.

Þetta á Ögmundur að vita sem gamall fréttamaður, segir Illugi.

En þetta gerði Ögmundur í viðtalinu í gær – mér til óblandinnar sorgar.

Hann reyndi að taka yfir viðtalið. Setja ofan í við fréttmanninn. Skjótaboðann.

Hann skammaði meira að segja Helga Seljan fyrir að voga sér að spyrja sig svona spurninga – hann sem alltaf hefði barist af svo mikilli hörku gegn alheimskapítalismanum.

Æ, Ögmundur, æ!

Hér má lesa færslu Illuga í heild sinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is