eyjan.is

Viðskipti Miðvikudagur 08.02.2012 - 14:50 - Ummæli ()

Fyrrum fasteignasali skuldar fleiri hundruð milljónir en getur ekki borgað milljón í lögfræðikostnað

Rekstur Almenna lífeyrissjóðsins var alfarið í höndum Glitnis banka um margra ára skeið

Fyrrum fasteignasali sem skuldar í það minnsta 300 milljónir króna vegna fasteignakaupa á hápunkti góðærisins, var í dag dæmdur til að greiða lögmannsstofunni Logos 1,3 milljónir króna í vangreiddan lögfræðikostnað.

Maðurinn leitaði til lögmannsstofunnar árið 2008. Vanhagaði hann um lögfræðiaðstoð vegna mikilla skulda hans og til að leita samninga við viðskiptabanka sinn.

Í gögnum málsins kemur fram að um sé að ræða miklar skuldir mannsins og eiginkonu hans, bæði persónulegar og vegna persónulegra ábyrgða fyrir einkahlutafélag þeirra hjóna. Þar að auki hvíla miklar persónulegar ábyrgðir á fmanninum vegna tveggja einkahlutafélaga sem hann var hluthafi í.

Skuldir sem hvíla á íbúðarhúsi mannsins og nýbyggingu sem hann var að reisa í nafni einkahlutafélagsins nema 300 milljónum króna. Um er að ræða 600 og 400 fermetra einbýlishús í Garðabæ, en fjallað var um viðskiptin í Sirkus, fylgiblaði Fréttablaðsins árið 2007. Þar sagði að bara teikningarnar af húsinu hafi verið keyptar á 70 milljónir króna.

Logos flutti málið fyrir manninn sem fór bæði fyrir héraðsdóm og Hæstrétt. Hann borgaði hins vegar aldrei þá reikninga sem lögfræðistofan sendi honum, þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir. Bar hann iðulega við fjárskorti.

Héraðsdómur Reykjaness gerði manninum að greiða Logos rúmar 1,3 milljónir króna auk dráttarvaxta.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is