Ríkið gæti þurft að grípa til enn frekari uppsagna: Hefur slakað verulega á aðhaldi
Ríkið gæti þurft að grípa til enn frekari uppsagna vegna launahækkana opinberra starfsmanna. Flest bendir til þess að ríkið hafi slakað mjög á aðhaldi í ríkisfjármálum miðað við fyrri áform.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í Peningamálum Seðlabankans sem gefin voru út samhliða stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar, þar sem ákveðið var að halda stýrivöxtum óbreyttum.
Í ritinu segir að fyrstu áætlanir um samneyslu á fyrstu tveimur fjórðungum síðasta árs bendi til þess að mjög hafi slaknað á aðhaldi í ríkisfjármálum miðað við fyrri áform. Áætlaður halli á ríkissjóði er 20,7 milljarðar á þessu ári.
Bent er á að nokkrar breytingar hafi orðið á þeim fjárlögum sem Alþingi samþykkti í desember frá upphaflegu fjárlagafrumvarpi. Var heildarjöfnuðurinn 3 milljörðum lakari en í upphaflegu frumvarpi. Þar munar mestu að ekki var gengið jafn langt í aðhaldi launakostnaðar eins og gert hafði verið ráð fyrir í frumvarpinu. Í ritinu segir:
Gert er ráð fyrir að launakostnaður í ár verði 2,5% meiri en í fyrra. Í ljósi umsaminna launahækkana opinberra starfsmanna er ljóst að enn þarf að skera niður vinnumagn eigi þessi forsenda að halda.
Ekki er hægt að túlka þessi orð Seðlabankans öðruvísi en að ríkið þurfi að grípa til uppsagna, eða skerða vinnutíma opinberra starfsmanna til að standast áætlun.
Eftirspurn eftir vinnuafli á almennum markaði heldur þó áfram að aukast. Líkt og fram kom í hagspá ASÍ í gær segir seðlabankinn að fyrirtæki hafi brugðist við þessu með því að lengja vinnutímann í stað þess að ráða nýtt fólk til starfa. Þeim fjölgar sem eru í fullu starfi, en þeim sem eru í hlutastarfi fækkar.Fleiri fyrirtæki hyggjast fjölga starfsmönnum á árinu en fækka.
Framboðið af vinnuafli hefur á móti minnkað um rúmlega 3 þúsund manns á milli ára. Þetta skýrir Seðlabankinn með fjölgun námsmanna og öryrkja.
Lykiltölur í Peningamálum seðlabankans:
Hagvöxtur í helstu viðkskiptalöndum Íslands: 0,8%
Álverð lækkar um 7%
Verð á sjávarafurðum í erlendum miðlum hækkar um 4%
Gengi krónunnar gagvart evru verður stöðugt í kringum 160 kr. fram á haust
Íbúðaverð hefur hækkað um 4% að raunvirði
Einkaneysla jókst um 4,5% á síðasta ári
Fjárfesting í atvinnulífinu jókst um 6,5% í fyrra
Spáð er 2,5% hagvexti á árinu
Atvinnuleysi verður 6,3% í ár
Laun hækka um 5% í ár
Meðalverðbólga ársins verður 4,6%
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
