Segjum elítunni stríð á hendur: Burt með þá alla sem einn
„Nú þarf hinn almenni sjóðsfélagi í þessu landi að segja þessari lífeyrissjóðselítu stríð á hendur og krefjast þess að þeir sem ábyrgð á þessu bera verði látnir sæta henni með afsögn,‟ segir verkalýðsleiðtoginn Vilhjálmur Birgisson.
Lífeyrissjóðurinn sem Verkalýðsfélag Akraness á aðild að tapaði 20 milljörðum króna í bankahruninu, eða 36 prósent af heildareignum sjóðsins. Vilhjálmi er skiljanlega ekki skemmt og spyr hversu háum fjárhæðum forstjórar og framkvæmdastjórar lífeyrissjóða, sem eru með 15 til 20 milljónir í árslaun, þurfi að tapa áður en þeir sæti ábyrgð.
„Mín afstaða er alveg hvellskýr. Allir framkvæmdastjórar og forstjórar allra sjóða sem töpuðu miskunnarlaust af lífeyri launafólks eiga skýlaust að sæta fullri ábyrgð og láta tafarlaust af störfum. Enda er morgunljóst að þeir hafa brugðist sjóðsfélögum sínum illilega,‟
segir Vilhjálmur í pistli sem hann skrifar á Pressuna. Hann bendir á að 480 milljarða króna tap lífeyrissjóðanna samsvari 18 góðum loðnuvertíðum.
„Þetta sýnir það glórulausa tap sem átti sér stað hjá sjóðunum.‟
Vilhjálmur segir þann „tryllta dans‟ sem stjórnendur lífeyrissjóðanna stigu með fjármálakerfinu í útrásinni með ólíkindum. Tekur hann sem dæmi að þegar lífeyrissjóðir lánuðu almennum sjóðsfélögum hafi þeir tryggt sig með belti og axlaböndum. Enda kom á daginn að ekkert tap varð af þeim lánum. Hins vegar hafi afar litlir fyrirvarar verið gerðir þegar kom að því að lána atvinnulífinu.
„Það voru einnig þessir sömu snillingar sem hafa ávalt lagst gegn því að almennar leiðréttingar á skuldum heimilanna komi til framkvæmda. Þeir segja gríðarlega ábyrgðarfullir hvort gamla fólkið eigi að greiða fyrir þann forsendubrest sem var hjá skuldsettum heimilum í kjölfar hrunsins. Þeir eru ekki jafn ábyrgðarfullir þegar kemur að því glórulausa tapi er lýtur að atvinnulífinu, en eru það ekki við sjóðsfélagarnir og þar með talið gamla fólkið sem þurfum að greiða fyrir þessar glórulausu fjárfestingar í fjármálakerfinu og atvinnulífinu.‟
Vilhjálmur segir að nú þurfi hinn almenni sjóðsfélagið að segja „lífeyrissjóðaelítunni‟ stríð á hendur og krefjast afsagnar stjórnenda sem og að Alþingi skipi rannsóknarnefnd sem fari ofan í saumana á starfsemi lífeyrissjóðanna. Enda sé nú komið á daginn hvers vegna atvinnurekendum sé svona mikið í mun að eiga aðkomu að sjóðunum.
„Jú, það er til að geta vílað og dílað með lífeyri launafólks og haft greiðan aðgang að fjármagni. Það virðist ekki vera neitt mál fyrir lífeyrissjóðina að afskrifa tugi og hundruð milljarða sem tengjast glórulausum fjárfestingum til handa fjármálakerfinu og atvinnulífinu en á sama tíma kemur ekki til greina að leiðrétta stökkbreyttar skuldir íslenskra heimila vegna óðaverðbólgunnar sem hér hefur ríkt, en rétt er að geta þess að lífeyrissjóðirnir hafa fengið í verðbætur af verðtryggðum eignum sínum er tengjast íslenskum heimilum sem nemur 170 milljörðum frá 1. janúar 2008. Með öðrum orðum, hinn almenni sjóðsfélagi hefur fengið tvöfaldan skell í höfuðið, fyrst skertan lífeyri og stórfellt tap sjóðanna og síðan stökkbreyttan höfuðstól vegna verðbóta sem tengjast lífeyrissjóðunum.‟
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

