Stjórnarþingmaður: Ögmundur væri maður að meiri með því að axla ábyrgð
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að Ögmundur Jónasson yrði maður að meiri með því að gangast við ábyrgð sinni í lífeyrissjóðsmálinu, fremur en að skýla sér á bak við lagakróka.
Ólína segir á bloggi sínu á Smugunni að það hafi verið „undarlegt“ að hlusta á Ögmund „verja gjörðir sínar“ í Kastljósi í gær.
…með því að hann hafi sjálfur ekki fengið við neitt ráðið sem stjórnarmaður og um skeið stjórnarformaður Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, af því að með breytingu á lögum um starfsemi lífeyrissjóða hafi þeim verið „gert að braska með peninga lífeyrisgreiðenda“. Heyr á endemi.
Ólína segir að samkvæmt lögum sé gert ráð fyrir því að stjórnir lífeyrissjóða móti sér ábyrga fjárfestingastefnu. Ekki sé mælt fyrir um að tekin skuli áhætta með fjárfestingum sjóðanna, heldur þvert á móti séu ávöxtunarmöguleikar metnir í ljósi áhættunnar.
Lagakrókar veita hvorki Ögmundi né öðrum neitt skjól í þessari umræðu – þvert á móti. Stjórnendur lífeyrissjóðanna standa einfaldlega frammi fyrir þeim afleiðingum eigin ákvarðana og athafna (eða athafnaleysis). Ögmundur væri maður að meiri að gangast við þeirri ábyrgð af tilhlýðilegri auðmýkt, heldur en að berja frá sér með þeim hætti sem alþjóð varð vitni að í umræddu Kastljósviðtali.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
