89:3 fyrir LÍÚ. Moka inn arði meðan landsmenn bera byrðarnar af hruninu

Er réttlæti í því að útvegsmann njóti 89 milljarða arðs af auðlindinni í hafinu meðan lýðurinn fær aðeins þrjá milljarða spyr Kristinn H. Gunnarsson
Hreinn arður af fiskveiðum á Íslandi árið 2009 og 2010 nam alls 92 milljörðum króna. Af þeirri upphæð fékk íslenska ríkið í sinn hlut þrjá milljarða króna.
Kristinn H. Gunnarsson, fyrrum þingmaður, gerir þetta að umtalsefni í grein í Fréttablaðinu og gagnrýnir að á sama tíma og landsmenn þurfi að bera sífellt þyngri byrðar vegna hrunsins maki útgerðarmenn krókinn og sleppi billega. Telur hann eðlilegt að arður af veiðum fari því í ríkari mæli til þjóðarinnar og sé notaður til að bæta stöðu landsmanna.
Fiskveiðiarðurinn verður til vegna dugnaðar og útsjónarsemi sumra útgerðarmanna sem greiða öðrum útgerðarmönnum háar fjárhæðir fyrir að fá að veiða fiskinn. Þessar greiðslur endurspegla fiskveiðiarðinn. Þegar veiðarnar eru arðbærar þá er verðið hátt. Sem dæmi þá eru greiddar meira en 200 kr. fyrir veiðiréttinn á 1 kg af ýsu og 330 kr. fyrir 1 kg af þorski. Að teknu tilliti til mögulegra ívilnana í kerfinu má segja að um 60% af fiskverðinu miðað við fiskmarkaðsverð fari til greiðslu á veiðiréttinum þegar um leigu er að ræða. Hlutfallið kann að vera lægra þegar rétturinn er keyptur til langs tíma, en það er samt ekki frábrugðið í grundvallaratriðum. Íslenskir bankamenn hafa reiknað þetta verð út.
Afkoma þeirra sem veiða sinn eigin kvóta er að sjálfsögðu gríðarlega góð. Samkeppni og jafnræði í sjávarútvegi er ráðið til þess að skipta arðinum á sanngjarnan hátt. Landsmenn hafa til þessa borið byrðarnar af hruninu með hækkandi sköttum og skuldum og hlíft LÍÚ. Kerfisbreyting og jafnræði í úthlutun kvóta er forsenda þess að nota megi fiskveiðiarðinn til þess að bæta stöðu almennings. Tími gjafagróðans er liðinn. Það getur enginn lengur skorist úr leik.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
