eyjan.is

Viðskipti Fimmtudagur 09.02.2012 - 13:10 - Ummæli ()

Engin kreppa í boltanum: Þau ríku verða enn ríkari – Tekjurnar eru stjarnfræðilegar

Nýr auglýsingasamningur Barcelona við Qatar Foundation gæti tryggt félaginu efsta sæti listans á næsta ári. / Mynd: Getty images

Þótt hagkerfi Vesturlanda standi höllum fæti verður það sama ekki sagt um helstu knattspyrnulið heims. Tekjur 20 stærstu liða heims námu 712 milljörðum króna á síðasta tímabili og jukust þar með um 3 prósent frá fyrra tímabili.

Þetta kemur fram í árlegri knattspyrnuskýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte. Sem fyrr er Real Madrid ríkasta lið heims, en tekjur félagsins námu 78 milljörðum króna. Barcelona er þar ekki langt undan.

Sem fyrr eru það gríðarstórir auglýsingasamningar og sífellt vaxandi áhorfendahópur sem tryggir félögunum þessar fjárhæðir. Ríkustu liðin eiga það flest öll sameiginlegt að hafa átt góðu gengi að fagna í Meistaradeild Evrópu á liðnum árum, en þátttaka í þeirri keppni tryggir þeim gríðarlegar fjárhæðir.

Þannig hefur Liverpool fallið niður um eitt sæti á listanum frá fyrra tímabili vegna fjarveru frá Meistaradeildinni. Í skýrslunni segir að Liverpool eigi á hættu að detta út af topp 10 á næsta ári, enda sækja Manchester City og Tottenham fast að Liverpool. Bæði þessi lið hafa náð sæti í Meistaradeildinni á kostnað Liverpool.

Hástökkvari listans að þessu sinni er þýska liðið Schalke. Þótt liðinu hafi ekki gengið vel heima fyrir á síðustu leiktíð náði það góðum árangri í Meistaradeildinni. Félagið náði hins vegar ekki að tryggja sæti sitt þar þessa leiktíðina og verður þar af leiðandi ekki á þessum lista að ári.

Þrjú ný lið bætast á listann, Dortmund, Valencia og Napoli. Þau tóku sæti Atletico Madrid, Stuttgart og Aston Villa.

Á næsta ári taka gildi nýjar reglur sem koma til með að gjörbylta rekstri knattspyrnuliða. Reglunum er ætlað að fá eigendur liðanna til að hugsa til lengri tíma, hvernig liðin geti aflað aukinna tekna, fjárfest í manvirkjum og unglingastarfi og haft stjórn á útgjöldum.

Hér að neðan má sjá listann yfir 20 ríkustu knattsyrnulið heims.

Heimild: Deloitte


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is