eyjan.is

Fimmtudagur 09.02.2012 - 17:54 - Ummæli ()

Guðmundur í Brimi kaupir lúxusvillu Hannesar Smárasonar á Fjölnisvegi

Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður kenndur við Brim, hefur fest kaup á Fjölnisvegi 11, sem áður var í eigu útrásarvíkingsins Hannesar Smárasonar.

Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem Guðmundur festir kaup á þessu sama húsi, því hann keypti húsið af Boga Pálssyni árið 2002 og bjó þar til ársins 2005.

Fyrir átti Guðmundur einbýlishús á 1.200 fermetra sjávarlóð við Nesveg á Seltjarnarnesi, en það hús fer væntanlega í sölu á næstunni. Í samtali við mbl.is segist Guðmundur hafa slegið til þegar hann sá húsið auglýst til sölu.

Fjölnisvegur 11 er eitt glæsilegasta hús landsins. Fasteignin er rúmir 400 fermetrar að stærð og eyddi Hannes um 300 milljónum króna í endurbætur á húsinu.

Í grein um fasteignina, frá árinu 2004 er fasteigninni lýst sem „stórglæsilegri og algerlega endurnýjaðri“. Kemur þar m.a. fram að í kjallara hússins sé spa með heitum potti, gufubaði og útgangi út á á lóð. Ennfremur er þar útilaug sem er um 8 metra löng.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is