Gunnar Birgisson er mættur aftur: Fær stóraukin áhrif með myndun nýs meirihluta
Áhrif Gunnars I. Birgssonar stóraukast með myndun nýs meirihluta í Kópavogi, enda í lykilstöðu í eins manns meirihluta.
Eins og fram kom á Eyjunni fyrr í dag hefur náðst málefnasamningur milli Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Y-lista Kópavogsbúa um myndun nýs meirihluta. Nýji meirihlutinn verður kynntur síðdegis. Nær öruggt er talið að Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokks, verði bæjarstjóri.
Það tók heilar þrjár vikur að mynda starfhæfan meirihluta, því áður höfðu hinir ýmsu flokkar gengið til árangurslausra viðræðna. En nýji meirihlutinn er naumur, aðeins 6 bæjarfulltrúar gegn 5.
Augu manna hafa því beinst að bæjarstjóranum fyrrverandi Gunnari I. Birgissyni, sem nú er kominn í lykilstöðu til áhrifa á nýjan leik. Þeir sem þekkja til mála í Kópavogi vita að hann og Ármann hafa ekki gengið í takt eftir að Ármann skákaði Gunnari í prófkjöri fyrir síðustu kosningar, enda var sú barátta hörð og óvægin.
Gunnar vildi þó í samtali við Eyjuna lítið gera úr þessum ágreiningi og sagðist styðja fyrirhugað samstarf.
Eru ekki allir í lykilstöðu?
Að öðru leyti vildi Gunnar ekkert tjá sig fyrr en búið er að kynna nýjan meirihluta.
Þegar viðræður Sjálfstæðisflokks við Næstbesta flokkinn og Y-lista stóðu yfir taldi Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi VG, ljóst að Gunnar yrði guðfaðir þess meirihluta. Sagði Ólafur að Gunnar væru umdeildur, jafnt meðal andstæðinga sem samherja.
Hann verður oddamaður, sá sem meirihlutinn og ákvarðanir hans geta oltið á. Gunnar væri í reynd kominn með ákvörðunarvald og það notar hann sér án þess að því fylgi neinar sorgir.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
