Nýr meirihluti í Kópavogi: Ármann Kr. Ólafsson sagður verða bæjarstjóri
Nýr meirihluti verður myndaður í Kópavogi í dag og hafa Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Y-listi Kópavogsbúa náð saman um málefnasamning. Ármann Kr. Ólafsson, verður að öllum líkindum bæjarstjóri.
Viðræður milli framboðanna þriggja hafa staðið yfir síðan á mánudag. Eftir því sem Eyjan kemst næst verður Ármann Kr. Ólafsson oddviti Sjálfstæðismanna bæjarstjóri, Ómar Stefánsson, Framsóknarflokki, verður formaður bæjarráðs og Rannveig H. Ásgeirsdóttir, Y-lista, forseti bæjarstjórnar. Þetta hefur þó ekki fengist staðfest.
Meirihluti Samfylkingar, VG, Næstbesta flokksins, og Y-listans sprakk vegna ágreinings um það hvernig staðið yrði að uppsögn Guðrúnar Pálsdóttur, bæjarstjóra. Hún hefur gegnt embætti sínu áfram þótt ekki hafi verið starfandi meirihluti í þrjár vikur. Hún mun þó vera á útleið samkvæmt því sem fram kemur hér að ofan.
Uppfært: Búið er að tilkynna um skipan í stöður nýs meirihluta. Eins og Eyjan greindi fyrst frá verður Ármann bæjarstjóri. Rannveig verður hins vegar formaður bæjarráðs og Ómar varaformaður. Margrét Björnsdóttir, Sjálfstæðisflokki, verður forseti bæjarstjórnar.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
